Hátt veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar er áhyggjuefni. Bæði vegna þeirra sem í hlut eiga og kostnaðarins sem af því hlýst.
Í svörum við fyrispurnum Framsóknar og flugvallarvina um veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar kemur fram að veikindahutfallið var 6,1% árið 2013, 6% árið 2014 og 5,9% árið 2015. Þó veikindahlutfallið fari lækkandi er það alltof hátt og langt umfram það sem ásættanlegt er.
Þumalputtareglan hefur verið sú hjá atvinnurekendum að ef veikindahlutfallið sé komið yfir 4% á ársgrundvelli þá sé það á rauðu svæði en helst vilji atvinnurekendur sjá tölur frá 0 upp í 2-3% yfir árið. Veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar er langt yfir því. Ljóst er að viðverustefna borgarinnar er ekki að virka sem skyldi og því þarf að grípa til frekari aðgerða.
Í svari við fyrirspurn um kostnað vegna veikinda, sundurliðað eftir sviðum/skrifstofum borgarinnar árið 2015 kemur fram að á velferðarsviði, skóla- og frístundasviði og íþrótta- og tómstundasviði sé haldið sérstaklega utan um kostnað vegna afleysinga tilkominna vegna veikindafjarvista.
Árið 2015 var kostnaður vegna afleysinga í langtíma og skammtímaveikindum á íþrótta- og tómstundasviði 26,7 mkr., á velferðarsviði 207 mkr. og á skóla- og frístundasviði var kostnaður vegna afleysinga í langtímaveikindum metinn á 473 mkr. og greiðslur vegna skammtímaveikinda 603 mkr.