Um þessar mundir stafar ógn af Rússum og líkur á að órói magnist enn um sinn á meðal Evrópuríkja og nágrannalanda þeirra. Fjármunir frá Rússlandi hafa streymt til ríkja þar sem Rússar gæta hagsmuna sinna. Sama hefur Evrópusambandið gert hjá væntanlegum aðildar- og umsóknarríkjum og streyma nú hirðskáld sambandsins niður á Austurvöll og yrkja þar ljóð um það hvernig pelarnir gætu tæmst.