Aðeins áratug eftir að EFTA samningurinn var undirritaður var ljóst að hann var bara áfangi. Með vaxandi pólitískum og efnahagslegum samruna Evrópu þurfti betri aðgang að mörkuðum þar. EES samningurinn hvílir á þremur megin stoðum; frjálsu flæði vöru, þjónustu, vinnuafls og fjármagns. Þetta á að tryggja frjálsan, hindrunarlausan markað með sameiginlegum leikreglum. Undanþágur frá þessum […]
Með krónuna í farteskinu munum við ekki geta aflétt öllum höftum af gjaldeyrisviðskiptum eða leyft frjálst flæði fjármagns milli landa. Engum nema vitleysingi dytti í huga að róa á árabáti til Bretlands. Í hnattvæddum fjármálaviðskiptum er íslenska krónan slíkur árabátur, ef hún þá nær þeirri stærð. Við yrðum að leita ásjár efnahagsstórveldis til […]
Það er samdóma álit flestra þeirra sem fjalla um efnahagsmál af skynsamlegu viti að samkeppni sé helsti drifkraftur öflugs viðskiptalífs og velmegunar í markaðstengdum hagkerfum. Færa má rök fyrir því, að samkeppni í viðskiptum í ESB/EES ríkjum sé hvergi minni en á Íslandi. Því valda m.a. stór auðlindageiri, íslenska krónan og smæð hagkerfisins. Auðlinda […]
Þegar Berlínarmúrinn féll 1989 og Sovétríkin lognuðust út af 1991, litu ófáir svo á sem Vesturlönd hefðu sigrað í Kalda stríðinu og þar með hefði samfélagstilraun þeirra, sem hefur lýðræði ,réttarríki, mannréttindi og frelsi að leiðarljósi, fest sig varanlega í sessi. Amerískur fræðimaður skrifaði um endalok sögunnar. Nú 25 árum síðar virðist sem […]