Myndun ríkisstjórnarinnar hefur kallað fram margs konar hugleiðingar um eðli hennar og tækifæri. Hástemmdustu heilabrotin vitnuðu í nýsköpunarstjórnina sem e.k. sáttastjórn, enda sátu í þeirri stjórn fulltrúar stjórnmálahreyfinga, sem mestar breytingar vildu gera á íslensku samfélagi ásamt þeim sem ekki vildu gera miklar ef nokkrar breytingar. Sáttin fólst aðallega í því að eyða sameiginlega […]
Á upphafsárum nýfrjálshyggjunnar reið alda fordæmingar á opinberu eftirliti yfir land og lýð. Í stað eftirlitsstofnunar var starfsemin uppnefnd eftirlitsiðnaður, sem átti að gefa í skyn að það sem þarna færi fram, væri atvinnustarfsemi, en ekki opinber þjónusta. Starfsemin var talin allt of dýr, fánýt og væri verkefni einkaaðila. Þjónustan sögð þvælast fyrir […]