Á Sprengisandi í morgun var að vanda góð og þörf umræða um þjóðfélagsmál. Í lok þáttarins undraðist Eiríkur Bergmann Einarsson hvernig réttnefnd sjálftaka gæti staðist. Samfélagið ólgar í kjölfar þess að skilanefndarfólk, skiptastjórar og lögmenn virðast geta skammtað sér – ef ekki verkefnin sjálf þá greiðslur fyrir þau. Fyrsta árs laganemi veit betur Svo er ekki – eins og […]
Ármaður þýðir forystumaður eða samkvæmt orðabók „umboðsmaður konungs eða stórhöfðingja“ – væntanlega á hverjum stað. Það er því vel við hæfi að nýr forystumaður Sjálfstæðismanna hér í Kópavogi heitir Ármann Kr. Ólafsson. Sjálfstæðismenn ákváðu breytingu á forystu Um leið og ég óska honum til hamingju get ég ekki stillt mig um að benda á að þar […]
Nú á miðnætti rennur út frestur til þess að skrá sig í Framsóknarflokkinn fyrir prófkjörið laugardaginn 27. febrúar. „Sami rassinn undir þeim öllum“ Komist ég til forystu í Framsóknarflokknum mun misbeiting valds ekki líðast í Kópavogi. Hví skyldu lesendur vilja skrá sig í flokkinn – í þeirri trú að ég vilji breytingar? Svarið við […]
Á morgun, föstudag 19. febrúar, rennur út frestur til þess að skrá sig í Framsóknarflokkinn fyrir þá sem vilja hafa áhrif á mannval í prófkjöri okkar Framsóknarfólks laugardaginn 27. febrúar nk. Þetta er ykkar persónukjör. Traust Ég býð mig fram til þess að leiða lista Framsóknarflokksins í bæjarstjórnarkosningum í vor. Þörf er á að […]
Þessi fleygu orð Bubba koma í hugann: Ekki benda á mig, … Spyrjið þá, sem voru á vakt. Deilt er um hvort kjörnir fulltrúar megi hafa geðsjúkdóm – og þurfi heilbrigðisvottorð. Hvað með siðspillingu – þurfum við ekki vottorð til þess að mega þjóna kjósendum? Svar mitt er: Jú. Ég er líka með tillögu um hvernig […]
Ein tegund spillingar eða misbeitingar valds felst í að skara eld að eigin köku eða til handa vinum eða vandamönnum. Um það nefndi ég gróft dæmi um úr Kópavogi í pistli mínum sl. laugardag. Ég benti þó einnig á nýjar siðareglur fyrir stjórnendur og kjörna fulltrúa Kópavogsbæjar – sem eiga að fyrirbyggja spillingu í framtíðinni eins […]
Enn setja foreldrar fram þá spurningu hvers vegna þurfi að rjúfa vinnudaginn síðdegis til þess að skutla yngri börnum fram og til baka milli hverfa í íþróttir og aðrar tómstundir. Í kjölfarið koma svo tímar fyrir eldri börn og rjúfa heimilisfriðinn í stað þess að fjölskyldan eigi þess kost að safnast saman að loknum vinnudegi […]
Í tengslum við niðurstöður prófkjara þessar vikurnar vakna oft spurningar um kynjaskiptingu og jafnvel kynjakvóta. Í fyrra starfi mínu hjá heildarsamtökum háskólamenntaðs launafólks, BHM – þar sem meirihluti félagsmanna er konur – vann ég í nær sjö ár að því að rétta hlut kvenna. Stærsti áfanginn í því var þegar fallist var á kröfu BHM varðandi ný […]
Að gefnu tilefni vil ég gera grein fyrir gráum svæðum – og svörtum – að því er varðar hagsmunaárekstra – m.a. hér í Kópavogi. Frá því að ég hóf laganám fyrir um 20 árum hefur mér verið sérlega umhugað um að greina á milli andstæðra hlutverka og gæta þess að ekki komi upp hagsmunaárekstrar – hvorki hjá mér […]
Í dag, 11. febrúar 2010, er rétt ár síðan fimm aðilar úr ólíkum áttum sameinuðust í Ákalli til stjórnvalda um almennar aðgerðir til lausnar efnahagsvanda heimilanna. Í upphafi ákallsins fögnuðum við, sem að ákallinu stóðum, áformum nýmyndaðrar minnihlutastjórnar – sem var hvött til dáða. Um leið lögðum við til skjótar lausnir á skuldavanda heimilanna. Síðar breyttist […]