Neyðarbrautin skiptir máli eins og heldur betur sannaðist í dag. Það er mikilvægt hagsmunamál fyrir okkur öll að henni verði ekki lokað eins og meirihlutinn í borgarstjórn hefur ákveðið með Dag B. Eggertsson borgarstjóra í broddi fylkingar. Meirihlutinn í borgarstjórn hefur samþykkt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir því að neyðarbrautin fari og er ekki lengur gert ráð fyrir neyðarbrautinni á skipulagi. Í dag sannaðist það heldur betur að við sem höfum haldið fram mikilvægi brautarinnar höfum haft rétt fyrir okkur í málflutningi okkar og ekki er um tilfinningaklám að ræða eins og einn borgarfulltrúi Samfylkingarinnar orðaði það:
http://kristinsoffia.tumblr.com/post/84519296200/tilfinningaklam
Neyðarbrautin gerði gæfumuninn í annasömu sjúkraflugi í dag og og tryggði jafnframt að innanlandsflug raskaðist lítið í snarpri suðvestanáttinni sem ríkti á flugvellinum eins og fram kemur á visir.is:
http://www.visir.is/litla-neydarbrautin-hjalpadi-sjukra–og-innanlandsfluginu/article/2015150109212