Á fyrsta fundi borgarráðs á nýju ári sem haldinn var í dag lagði undirrituð fram níu fyrirspurnir sem lúta m.a. að stöðu á biðlistum og kostnaði vegna utanlandsferða kjörinna fulltrúa á árinu 2015 sundurliðað eftir stjórnmálaflokkum og eina tillögu sem lýtur að úttekt á eineltismálum í skólum borgarinnar.
Fyrirspurnir:
- Óskað eftir upplýsingum um það hvað Félagsbústaðir keyptu og seldu margar almennar félagslegar leiguíbúðir á árinu 2015. Óskað er eftir sundurliðun eftir póstnúmeri, stærð, herbergjafjölda, kaupverði og í hvaða mánuði íbúðirnar voru keyptar eða seldar. Þá er óskað eftir upplýsingum um standsetningarkostnað hverrar íbúðar.
- Óskað er eftir upplýsingum hvað margir voru á biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum í árslok 2015 og hve margir þeirra eru metnir í brýnni þörf og skipting þeirra eftir fjölskyldugerð og aldri umsækjenda.
- Óskað er eftir upplýsingum um fjölda þjónustuíbúða aldraðra og íbúða vegna sértækra búsetuúrræða í eigu Félagsbústaða í árslok 2015 og fjölda á biðlista eftir slíkum íbúðum.
- Óskað er eftir upplýsingum um það hvað voru mörg laus pláss á leikskólum borgarinnar í árslok 2015.
- Óskað er eftir upplýsingum um það hvað margir voru á biðlista eftir stuðningsþjónustu í árslok 2015.
- Óskað er eftir upplýsingum um það hve mörg börn voru á biðlista eftir greiningu hjá þjónustumiðstöðvum borgarinnar í árslok 2015 og hversu lengi þau hafa verið á biðlista. Óskað er eftir sundurliðun á fjölda barna á biðlistum og biðtíma eftir hverfum.
- Óskað er eftir yfirliti yfir sölu á lóðum/byggingarrétti fyrir íbúðarhúsnæði á árinu 2015 og hvort um einbýlis- eða fjölbýlishúsalóðir hafi verið að ræða og þá fyrir hvað margar íbúðir á hverri lóð.
- Óskað er eftir yfirliti yfir óseldar lóðir/sölu á byggingarrétti fyrir íbúðarhúsnæði í árslok 2015 og hvort um einbýlis- eða fjölbýlishúsalóðir sé að ræða og þá fyrir hvað margar íbúðir á hverri lóð.
- Óskað er eftir upplýsingum um heildarkostnað Reykjavíkurborgar vegna utanlandsferða starfsmanna og kjörinna fulltrúa á árinu 2015. Óskað er eftir sundurliðun annars vegar á kostnaði vegna starfsmanna og hins vegar kostnaði vegna kjörinna fulltrúa. Þá er óskað eftir sundurliðun á fjölda og kostnaði kjörinna fulltrúa í borgarstjórn og nefndum og ráðum á vegum borgarinnar sem og stjórnum b-hluta fyrirtækja eftir stjórnmálaflokkum sem fóru í utanlandsferðir á árinu 2015.
Tillaga:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela skóla- og frístundasviði að vinna úttekt á meðferð eineltismála í skólum Reykjavíkurborgar. Í úttektinni skal kanna hvort einhverju er ábótavant við feril og meðferð eineltismála, forvarnir, inngrip og eftirfylgni og ef svo reynist vera, vinna tillögur að leiðum til að uppræta og koma í veg fyrir einelti meðal skólabarna í Reykjavík.