Kjósendur hafa val í lok október. Þeir geta valið um áframhaldandi hagvöxt, áframhaldandi uppbyggingu, lágt atvinnuleysi og ábyrga fjármálastjórn sem ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa staðið fyrir. Í tíð þessarar ríkisstjórnar hefur kaupmáttur heimila hækkað til muna, skuldir heimila lækkað og tekjur hækkað. Því fer fjarri að uppbyggingunni sé lokið. Verulega þarf að bæta í […]
Það er full ástæða til að biðja eldri borgara og öryrkja afsökunar á kjör þeirra skuli ekki hafa verið bætt meira en raun ber vitni af þeirri ríkisstjórn sem ég tilheyri. Það er ófyrirgefanlegt. Þegar rétt um sjö vikur eru til kosninga bólar ekkert á aðgerðum. Og það þó að nægir fjármunir séu fyrir hendi. […]
Ég auglýsi eftir verðlækkun á innfluttum vörum vegna styrkingar krónunnar og lækkunar á sköttum og gjöldum sem þessi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir- Hvar eru þessar lækkanir? Ég verð lítið var við þær. Þannig bendir Alþýðusamband Íslands á að afnám vörugjalda á byggingavörur, lægri virðisaukaskattur og styrking krónunnar, hafi ekki skilað sér til neytenda Þvert […]
Undanfarna daga hefur heyrst sú skoðun að samkeppnisstaðan á fjölmiðlamarkaði sé ójöfn – hún sé ósanngjörn og komi í veg fyrir að einkareknir fjölmiðlar, sem flestir eða allir verða að reiða sig á auglýsingatekjur, geti vaxið og dafnað og þar með sinnt sínu hlutverki sem skyldi. Ég er sammála þessu viðhorfi Það er þó nauðsynlegt […]
Ég er í hópi 25 þingmanna sem lögðu í dag fram þingsalyktunartillögu um að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Flugvöllurinn getur aldrei verið einkamál borgarstjórnar Reykjavikur. Þetta er flugvöllur landsmanna allra, hvað svo sem misvitrir stjórnmálamenn segja. Meirihlutinn í borgarstjórn, fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar og Pírata, hafa hsft að engu vilja um […]
Kæru félagar og vinir; Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir næstu Alþingiskosningar, en valið verður á lista flokksins á tvöföldu kjördæmisþingi í lok mánaðarsins. Ég hef setið á Alþingi frá árinu 2013 fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður. Í störfum mínum hef ég m.a. lagt áherslu á […]
Það hefur aldrei verið neinn skortur á erlendum lukkuriddurum sem vilja fjárfesta á Íslandi. Og það hefur aldrei verið neinn skortur á bláeygðum stjórnmálamönnum sem trúa öllu sem þeim er sagt eins og nýju neti. Það nýjasta er nýtt og glæsilegt einkasjúkrahús í Mosfellsbæ. Slíkt sjúkrahús mun óhjákvæmilega leiða til mikils launaskriðs hjá öllum heilbrigðisstéttum, […]
Vestrænir stjórnmálaleiðtogar anda léttar eftir hina misheppnuðu uppreisn í Tyrklandi og það er helst að skilja að þar sé allt í góðum gír. Það fer lítið fyrir opinberri gagnrýni á Erdogan forseta, þrátt fyrir eftirfarandi: – Stjórn Erdogans hefur svipt þingmenn friðhelgi, þannig að hægt er að sækja þá til saka verði þeim á að […]
Færeyski rithöfundurinn William Heinesen skrifaði fyrir margt löngu sögu sem nefndist „Glataðir snillingar“ í íslenskri þýðingu. Oft hefur þessi titill komið upp í hugann þegar ég hef hlustað á snillinga hinnar íslensku þjóðfélagsumræðu. Ekki það að ég telji þá glataða, miklu frekar snillinga. Slíkt fólk tjáir sig daglega á samfélagsmiðlum, sumir úr ræðustól Alþingis. Þetta […]
Margt bendir til þess að Alþingi muni ekki afgreiða þingsályktun mína og nokkurra annarra þingmanna Framsóknarflokksins um að sett verði á laggirnar embætti umboðsmanns aldraðra. Þetta er þyngra en tárum taki. Málið er núna búið að vera fast í velferðarnefnd þingsins svo mánuðum skiptir. Nefndinni er ákveðin vorkunn, þar sem hún hefur verið upptekin í […]