Birti hér jómfrúarræðu mína á Alþingi, sem mér þykir vænt um. Virðulegi forseti. Hv. þm. Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykv. n., hóf jómfrúrræðu sína á Alþingi í gær með orðunum, með leyfi forseta: „Með djúpri auðmýkt.“ Þetta þótti mér vel mælt hjá þingmanninum því að í þessu orði, „auðmýkt“, felst mikill styrkleiki sem er m.a. […]
Leikkonan heimsþekkta Angelina Jolie hefur stigið fram og greint frá því að hún hafi látið fjarlægja bæði brjóst sín vegna þess að hún er með arfgengt meingeng. Um 80 prósent líkur eru á því að hún fái brjóstakrabbamein, sem geti leitt hana til dauða langt fyrir aldur fram. Þetta hefur að sjálfsögðu vakið heimsathygli. Jolie […]
Kæru landsmenn. Ég er staðráðin að komast á Alþingi næsta kjörtímabil. Sex vikur eru nú til stefnu og vegna þess hve við Sjálfstæðismenn fáum lítið fylgi skv skoðanakönnunum er fjöldi frambjóðenda flokksins, sem ég veit að munu geta gert þjóðinni mikið gagn næstu 4 árin úti í kuldanum. Þetta skil ég ekki. Ég er til […]
Við Íslendingar stöndum öll sem einn maður þegar eitthvað á móti blæs, eins og í óveðrinu í gær. Lögreglan, björgunarsveitir, Strætó býður upp á fiskibollur svo fátt eitt sé talið. Allir reiðubúnir að hjálpa náunganum og hugsa um velferð hans. Ég kom inn í Bakarameistann í Suðurveri í gærmogun á leið til vinnu. Þar fékk […]
Á nýafstöðnum landsfundi Sjálfstæðisflokksins urðu þau tíðindi að konur voru kosnar formenn í sjö af átta föstum málefnanefndum flokksins sem starfa á milli landsfunda. Eins og flestir vita er landsfundur æðsta valdastofnun Sjálfstæðisflokksins þar sem stefna flokksins er mótuð hverju sinni. Landsfundir í aðdraganda kosninga eru auðvitað sérlega mikilvægir. Á fundinum var Áslaug Friðriksdóttir var kjörin, […]
Snillingarnir Guðný Pálsdóttir, Gróa Ásgeirsdóttir og Elísabet Sveinsdóttir hlutu Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin í dag. Þessar fræknu konur eru heilarnir á bak við átakið ,,Á allra vörum“ sem hefur staðið fyrir söfnunum til góðgerðarmála með glæsilegum hætti undanfarin ár. Haustið 2012 gerði þetta átak það kleift að opna stuðningsmiðstöð fyrir börn með sjaldgæfa, alvarlega, ólæknandi sjúkdóma, með landssöfnun á […]
Við Íslendingar eigum mikið af afreksfólki og þegar met eru sleginn verðum við stolt og glöð og stöndum þétt saman. Ganga Vilborgar Örnu Gissurardóttur á Suðurpólinn er dæmi um slíkt afrek sem sameinar þjóðina. En svo er önnur met sem sundra fremur en að sameina. Það nýjasta er að ríkisstjórn Samfylkingar og VG virðist hafi slegið […]
Hvað er eiginlega í gangi inni á þessari mikilvægustu og merkustu stofnun okkar samfélags. Ég skammast mín fyrir samborgara mína, þ.e. þá Alþingismenn í þessu tilfelli, sem haga sér svona. Þeir eru fyrirmyndir, en standa engan veginn undir því. Skrílslæti á aftasta bekk í þingsal: Þingmaður Framsóknar tekinn sérstaklega fyrir eyjan.pressan.is „Það hefur vakið vægast […]
Landsbyggðarmál eru mér hugleikin og því er N4 sjónvarpsstöðin í uppáhaldi eins og áður hefur komið fram. Einhver hélt því fram að ég væri að hrósa N4 af því ég að ætlaði í framboð úti á landi. Má manni ekki þykja vænt um landið sitt án þess að maður sé í einhverjum framboðshugleiðingum? Nú er […]
Það er gaman að vera frambjóðandi á ferð í Suðvesturkjördæmi. Mosfellsbær, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Álftanes og Hafnarfjörður eru mínar kjörlendur. Eins og fram hefur komið hef ég hef lýst því yfir sækist ég eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu. Prófkjörið fer fram laugardaginn 10. nóvember næstkomandi. Kjördæmið mitt er oft kallað Kraginn, því […]