Framboð í þágu valdajafnvægis Nú – þegar réttur mánuður er til kosninga til stjórnlagaþings og 523 framboðstilkynningar hafa verið staðfestar – vil ég upplýsa að ég býð mig fram til þess að sitja stjórnlagaþing í ykkar umboði í því skyni að bæta stjórnarskrána – og jafna völd mismunandi aðila og hagsmuna. Þrjú stefnumál til að […]
Erindi sem ég flutti í kvöld á borgarafundi Bótar í Salnum í Kópavogi að ósk skipuleggjenda: Forseti, fundarstjóri og aðrir fundargestir. Ég þakka fyrir að fá boð um að tala á þessum fundi. Ég gjarnan ræða um tvennt: Í fyrsta lagi vil ég ræða um stjórnarskrána og framfærslu – sem er að vísu ekki beinlínis neytendamál en […]
Í beinu framhaldi af síðasta pistli stóðu eftir þrjár spurningar: Þurfum við fleiri (almenna) dómstóla, svo sem millidómstig, og þarf stjórnarskrárbreytingu til þess? Þurfum við þurfum sérstakan stjórnlagadómstól? Krefst stofnun stjórnlagadómstóls eða tilvist hans stjórnaskrárbreytingar? Að því er varðar spurninguna um hvort stofna eigi millidómstig meðal hinna almennu dómstóla, þ.e. á milli héraðsdómstóla og Hæstaréttar, […]
Í tveimur síðustu færslum mínum í gær og fyrradag rakti ég og greindi þau fjórtán ákvæði stjórnarskrárinnnar, þar sem eitthvað er minnst á dómsvald, dómara, dómstóla eða dóma, greindi þau. Mikið um hlutverk – lítið um sjálfstæði Ég dró einkum þær ályktanir að töluvert væri í stjórnarskránni kveðið á um hlutverk dómsvalds og réttindi borgaranna […]
Eftir ítarlega færslu í gær, þar sem ég taldi upp og greindi þau fjórtán ákvæði stjórnarskrárinnnar þar sem eitthvað er minnst á dómsvald, dómara, dómstóla eða dóma – með þeirri viðbót, sem gleymdist í upphafi (1. mgr. 70. gr.) er tilefni til frekari ályktana. Mikið um hlutverk dómsvalds og réttindi borgara… Stjórnarskrárákvæðum um þetta efni […]
Nú þegar aðeins um 5 vikur eru til stjórnlagaþings[kosninga]* hugsa rúmlega 500 frambjóðendur sjálfsagt – og vonandi sem flestir kjósendur – hvort einhverju þurfi að breyta og hverju sé mikilvægast að ræða hvort breyta eigi. Grunar mig að hlutfallslega margir hugsi til dóms- og kirkjumála. Um kirkjumál mun ég e.t.v. síðar tjá mig hér en […]
Um skeið hef ég óttast að íhaldsöfl muni hunsa stjórnlagaþing – bæði við framboð, kosningar og þegar að því kemur að virða niðurstöðuna og hrinda henni í framkvæmd. Ég hef í raun óttast þetta innst inni frá upphafi er ég lagði fyrst til að boðað yrði til sjálfstæðs stjórnlagaþings í nóvember 2008 – eins og lesa […]
Í kvöld leit ég við á ágætum fundi stjórnarskrárfélagsins; ég gat ekki setið fundinn allan vegna hins skamma fyrirvara frá því að ég frétti af honum. Í máli formanns félagsins kom raunar fram að dregið hefði verið úr kynningu fundarins og boðum á hann í kjölfar frétta af miklum fjölda framboða – sem sagt var […]
Í gær vék ég að afstöðu læriföður míns, Sigurðar Líndal, til stjórnlagaþings – en lét við það sitja að færa fram jákvæðar röksemdir fyrir stjórnlagaþingi. Nú vil ég svara hinni neikvæðu afstöðu* Sigurðar, lið fyrir lið – ómálefnalegum röksemdum sem málefnalegum. Sigurður á ekki annað skilið frá mér en að ég svari honum málefnalega eftir […]
Hressandi var að sjá frétt um að hátt í 500 manns gæfu kost á sér í kosningum til stjórnlagaþings eftir tæpar 6 vikur – og í raun hraustleikamerki á lýðræðisvitund okkar Íslendinga. Verra fannst mér að sjá og heyra neikvæða og að miklu leyti ómálefnalega afstöðu míns mæta læriföður, Sigurðar Líndal, í málgagni andstæðinga stjórnlagaþings; […]