Hugmyndir um þrengingu og hjólastígagerð á Grensásvegi hafa verið í umræðunni síðustu daga. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í dag var samþykkt að fela samgönguskrifstofu umhverfis-og skipulagssviðs að halda kynningarfund um tillöguna þ.e. þrengingu á götu og gerð hjólastígs á Grensásvegi sunnan Miklubrautar, og hefja samráð við hverfisráð, íbúasamtök, samtök hjólreiðamanna, slökkvilið, lögreglu og sjúkraflutninga […]
Félagsbústaðir áttu á árinu 2009 samtals 1842 félagslegar leiguíbúðir. Í svari velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í sumar við fyrirspurn félags- og húsnæðismálaráðherra kemur fram að fjöldi félagslegra leiguíbúða í eigu Félagsbústaða sé 1804 og um 850 umsækjendur séu á biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum í Reykjavík þar af um 550 í brýnni þörf. Sú stefna var hjá Félagsbústöðum að kaupa eða […]
Í morgun var Dagur borgarstjóri með fyrirlestur um „Nýjar íbúðir í Reykjavík“. Glærurnar sem hann fór yfir á fundinum er hægt að nálgast hér: http://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skjol_frettir/kynningarfundur_sea_november_2014_endanlegt.pdf Til að glöggva mig betur á slíkum upplýsingum eins og fram koma á glærunum finnst mér gott að setja slíkar upplýsingar upp í töflur til að átta mig betur á þeim. Af […]
Í morgun var haldinn fundur í atvinnuvega- og umhverfis- og samgöngunefndum Alþingis í kjölfar þess að umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti deiliskipulag fyrir Hlíðarendasvæðið í gær. Dagur borgarstjóri og Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs voru boðaðir á fundinn en þeir afboðuðu sig. Á fundinum sagði Friðrik Pálsson frá samtökunum Hjartanu í Vatnsmýrinni að NA/SV-braut […]