Í nóvember 2015 var málþing um húsnæðisuppbygginguna í Ráðhúsinu. Þar fór borgarstjóri meðal annars yfir það hvað verktakar eru að byggja og hvað þeir ætla að byggja í borginni.
Á málþinginu kom í ljós að uppbyggingin gengur hægar fyrir sig en borgarstjóri var áður búinn að spá. Í mars 2014 spáði borgarstjóri, þá sem formaður borgarráðs, að byrjað yrði að byggja 950 íbúðir á árinu 2014. Staðreyndin er hins vegar sú að byrjað var að byggja 597 íbúðir á árinu 2014
Þá spáði hann því að byrjað yrði að byggja 1900 íbúðir á árinu 2015 en fjöldi nýrra íbúða í samþykktum byggingaráformum árið 2015 var samtals 969 og í útgefnum byggingarleyfum samtals 926.
Ef nýjustu áætlanir borgarstjóra, sem hann kynnti í nóvember sl., ganga eftir verður byrjað að byggja um 5000 íbúðir næstu 5 árin. Verður spennandi að sjá hvort byggðar verða 2500-3000 leigu- og búseturéttaríbúðir á 5 árum en nú er liðnir 19 mánuðir af kjörtímabilinu.
Hlutverk borgarinnar er að skipuleggja og úthluta lóðum
Hlutverk borgarinnar er að skipuleggja borgina svo hægt sé að byggja og að úthluta lóðum til að byggja á. Flestar þær lóðir sem verið er að byggja á eru lóðir sem búnar eru að vera í höndum annarra aðila en borgarinnar lengi og ekki að sjá að þar verði til sölu ódýrar íbúðir eins og sjá má á fasteignaauglýsingum.
Þar sem ekki er mikið til af lausum lóðum í eigu borgarinnar þar sem mesta uppbyggingin á að fara fram höfum við lagt til að byggt verði meira í Úlfarsárdal t.d. með því að skipuleggja fjölbýlishúsalóðir á svæðinu milli Mímisbrunns og Bauhaus.
Borgarstjóri hefur nú upplýst að engar fjölbýlishúsalóðir séu til sölu í Reykjavík með fleiri en 4 íbúðum en á næstu misserum muni borgin úthluta lóðum undir ca 1200 íbúðir.
Það þarf að setja í forgang að fjölga félagslegum leiguíbúðum, úthluta lóðum undir stúdentaíbúðir og úthluta lóðum til félaga sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða til að byggja leigu- og búseturéttaríbúðir meðal annars fyrir ungt fólk sem á ekki eigið fé, kemst ekki í gegnum greiðslumat, býr í foreldrahúsum eða ósamþykktu húsnæði eða leigir á almenna leigumarkaðnum langt umfram greiðslugetu.
Það er einmitt síðast nefndi hópurinn sem virðist að mestu hafa gleymst þó svo að húsnæðisstefna Reykjavíkur frá 2011 geri ráð fyrir þeim hópi. Núna er árið 2016 og húsnæðisstefnan er ekki enn komin til framkvæmda. Það þurfa að vera til lóðir svo hægt sé að byggja slíkar íbúðir. Ekki er nóg að einungis sé gert ráð fyrir slíkum íbúðum fyrir stúdenta og aldraða heldur þurfa að vera til slíkar íbúðir fyrir alla aldurshópa. Á næstu dögum mun borgarstjóri vonandi upplýsa hvort umræddar lóðir sem að úthluta, einhvern tíma á næstu misserum, séu ætlaðar ákveðnum aðilum eða hópum en gera má ráð fyrir að stærsti hluti þeirra verði fyrir námsmenn, aldraða og Félagsbústaði.
Kynning borgarstjóra, þá sem formaður borgarráðs, í mars 2014
Þar upplýsti hann að byrjað hefði verið að byggja 614 íbúðir á árinu 2013. Benti hann á að það hefði þurft að byggja 2700 fleiri íbúðir á árunum 2007-2012 til þess að halda meðaltali undanfarinna áratuga.
Gerði hann ráð fyrir því að framkvæmdir myndu hefjast við 4200 íbúðir á næstu 3 árum og spáði því að hafin yrði bygging á 950 íbúðum á árinu 2014.
Spá hans um að byrjað yrði að byggja 950 íbúðir á árinu 2014 gekk ekki eftir heldur var raunin sú að byrjað var að byggja 597 íbúðir.
Kynning borgarstjóra í nóvember 2014, útskýring á kosningaloforðinu?
Þar gerði borgarstjóri ráð fyrir því að byrjað yrði að byggja 1900 íbúðir á árinu 2015. Í árslok var búið að veita byggingarleyfi ryrir rúmlega 900 íbúðum. Einnig kom fram í glærunum sem hann fór yfir að gert væri ráð fyrir að byrjað yrði að byggja 22oo íbúðir 2016 og 2800 íbúðir 2017.
Þá fór borgarstjóri yfir uppbyggingu á samtals 2409 íbúðum á vegum ýmissa aðila en sú upptalning virðist vera hluti af kosningaloforðinu um 2500-3000 leigu- og búseturéttaríbúðir næstu 5 árin en um eftirtaldar íbúðir er að ræða: Félagsbústaðir 500 íbúðir, 1100 stúdentaíbúðir, Búseti 451 íbúð, íbúðir fyrir aldraða 280, ný búsetuúrræði fyrir fatlað fólk 28 íbúðir og 50 íbúðir fyrir öryrkja, Brynja hússjóður.
Hér má finna link á grein sem ég skrifaði um þá kynningu:
http://blog.pressan.is/gudfinnajohanna/2014/11/12/eru-2500-3000-nyjar-ibudir-i-bodi-borgarstjora/
Kynning borgarstjóra í nóvember 2015
Hér að neðan er að finna samantekt á glærunum sem borgarstjóri fór yfir á kynningunni, þ.e. í fyrsta lagi þar sem búið er að samþykkja deiliskipulag, í öðru lagi þar sem deiliskipulag er í vinnslu og í þriðja lagi framtíðarsvæði:
1. Samþykkt deiliskipulag | |||
Grandavegur | 142 | Þingvangur ehf. | Framkvæmdir klárast 2016 og 2017 |
Nýlendureitur | 20 | Reir ehf. | Framkvæmdir ekki hafnar |
Tryggvagata 13 | 40 | T13 ehf. | Framkvæmdir hafnar |
Austurhöfn 1-2 | 80 | Landstólpar þróunarf. | Framkvæmdir hafnar |
Austurhöfn 5 | 90 | Kolufell ehf. | Framkvæmdir hefjast 2016 |
Hljómalindarreitur | 25 | Þingvangur ehf. | Verklok 2015 |
Brynjureitur | 80 | Þingvangur ehf. | Framkvæmdir að hefjast |
Frakkastígsreitur | 68 | Blómaþing ehf. | Framkvæmdir hafnar |
Skuggahverfi | 77 | Skuggi 3 ehf. | Verklok fyrri áfanga 2015 og seinni 2016 |
Hverfisgata 59-61 | 24 | ||
Brautarholt 7 | 102 | Félagsstofnun stúdenta | Verklok ágúst 2016 |
Smiðjuholt | 204 | Búseti | Verklok 2016-2018 |
Guðrúnartún | 100 | Framkv. hafnar á 1 lóð | |
Höfðatorg | 80 | Eykt ehf. | Heimild fyrir 250 á reitnum skv Aðalskipulagi |
Skipholt 11-13 | 20 | Upphaf fasteignafél. | Framkv. í gangi |
Mánatún | 175 | Mánatún hf. | 90 íbúðir tilbúnar, framkv.tími seinni áfanga 2015-2018 |
Sigtúnsreitur | 108 | Helgaland ehf. | |
Hlíðarendi | 600 | Valsmenn/Rvk | 60 námsmannaíb. |
Háskólinn í Reykjavík | 350 | HR | Framkv. geta hafist 2016, stúdenta- og starfsmannaíbúðir |
Sléttuvegur | 280 | Þjónustuíb. f. aldraða, hjúkrunarheimili, búseturéttur, almennar íbúðir | |
Suðurlandsbraut 68-70 | 74 | Grund Mörkin | Verklok mars 2018, búseturéttur, íbúðir fyrir aldraða |
Suður Mjódd | 104 | Búseturéttur, íbúðir fyrir aldraða | |
Eddufell 8 | 24 | Heimavellir | Tilbúið maí 2015, íbúðir í langtímaleigu |
Bryggjuhverfi | 245 | ÞG verk | 1. áfangi 185 íb. hófst í des 2014/2. áfangi 69 íb. hefst 2015 eða 2016? |
Hraunbær 103-105 | 50 | Reykjavíkurborg | Skipulag í auglýsingu |
Úlfarsárdalur | 49 einbýlishúsalóðir til sölu, mögul að íbúðum fjölgi um 5-700 | ||
Reynisvatnsás | 27 einbýlishúsalóðir til sölu, Búseti fjórar raðhúsalóðir fyrir 18 íbúðir, íbúðir afh. 2016-2017 | ||
2. Deiliskipulag í vinnslu | |||
Keilugrandi | 78 | Búseti | Áætluð afh. 2017-2018 |
Vesturbugt | 170 | Reykjavíkurborg | Rvkhús |
Háskóli Íslands | 400 | Háskóli Íslands | |
Frakkastígur 1 | 20 | Reykjavíkurborg | Til skoðunar sem Rvk hús |
Baróns- og Laugavegsreitir | 200 | ÞG verk | |
Stakkahlíð | 150 | Reykjavíkurborg | 50 íbúðir f. aldraða og 100 námsmannaíb. |
Reykjavíkurhús v/HR | Reykjavíkurborg | 50-80 íbúðir | |
Borgartún/Nóatún | Margir eigendur | 50-100 | |
Borgartún 28 | 21 | HEK ehf. | |
Kirkjusandur | RVK/Íslandsbanki | 300-360 íb., framkv. áformaðar 2016 | |
Efstaleiti | 250 | RVK/Skuggi ehf | 40 íb. í Rvk hús |
Vogabyggð | 1120 | Margir eigendur | Framkv.tími 2017-2020 |
Elliðabraut 4-6 og 8-14 | 115 | Mótx/Þingvangur | |
3. Framtíðarsvæði | |||
Bykoreitur | 70 | ||
Landhelgisgæslureitur | 120 | Fasteignir ríkissjóðs | |
Héðinsreitur | 275 | ||
Stjórnarráðsreitur | |||
Heklureitur | 100 | Hekla | |
Skerjabyggð | 800 | Rvk/ríki | 150 stúdentaíb |
Veðurstofuhæð | |||
Kringlan | 150 skv. Aðalskipulagi | ||
Ármúli/Síðumúli | 450 skv. Aðalskipulagi | ||
Skeifan | 500 | ||
Lauganes | 150 | Húsnæði LHÍ | |
Fossvogur v/Borgarspítala | 15 | ||
Hraunbær-Bæjarháls | |||
Móavegur/Spöng | 100 | Reykjavíkurborg | |
Ártúnshöfði | 3200 íbúðir til ársins 2030 |