Færslur fyrir flokkinn ‘Húsnæðismál’

Föstudagur 20.02 2015 - 15:32

Stóra kosningaloforðið, vertu á götunni

Hátt í þúsund manns eru á biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum í Reykjavík. Greint var frá því á Vísi í gær að einstæð móðir með 5 mánaða gamalt barn sem verður heimilislaus eftir sjö daga hafi fengið þau svör frá borginni að hún verði bara að fara á gistiheimili. Þetta eru afleiðingar þess að Reykjavíkurborg hefur vanrækt að fjölga […]

Mánudagur 17.11 2014 - 16:50

Fyrirspurn um kaup á félagslegum íbúðum

Félagsbústaðir áttu á árinu 2009 samtals 1842 félagslegar leiguíbúðir. Í svari velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í sumar við fyrirspurn félags- og húsnæðismálaráðherra kemur fram að fjöldi félagslegra leiguíbúða í eigu Félagsbústaða sé 1804 og um 850 umsækjendur séu á biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum í Reykjavík þar af um 550 í brýnni þörf. Sú stefna var hjá Félagsbústöðum að kaupa eða […]

Miðvikudagur 12.11 2014 - 21:03

Eru 2500-3000 nýjar íbúðir í boði borgarstjóra?

Í morgun var Dagur borgarstjóri með fyrirlestur um „Nýjar íbúðir í Reykjavík“. Glærurnar sem hann fór yfir á fundinum er hægt að nálgast hér: http://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skjol_frettir/kynningarfundur_sea_november_2014_endanlegt.pdf Til að glöggva mig betur á slíkum upplýsingum eins og fram koma á glærunum finnst mér gott að setja slíkar upplýsingar upp í töflur til að átta mig betur á þeim. Af […]

Föstudagur 31.10 2014 - 12:08

Viltu köflótta gangstétt eða félagslegar leiguíbúðir?

Á sveitarfélögum hvílir sú skylda að tryggja framboð á húsnæði til handa þeim sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Félagsbústaðir sem eru í eigu Reykjavíkurborgar eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík. Eins og fram kemur á heimasíðu Félagsbústaða […]

Þriðjudagur 23.09 2014 - 15:01

Skortur á félagslegum leiguíbúðum í Reykjavík

Félagsbústaðir eiga í dag færri félagslegar leiguíbúðir en félagið átti á árunum 2009 og 2010. Á árunum 2009-2010 voru þær 1842 en í dag eru þær 1804. Horfið hefur verið frá þeirri stefnu að Félagsbústaðir kaupi eða byggi 100 íbúðir á ári og er stefnan að byggðar verði eða keyptar 30 íbúðir á ári. Þá […]

Höfundur

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
er lögmaður á Fasteignamál Lögmannsstofu og sérhæfir sig í öllum lögfræðimálum tengdum fasteignum svo sem gallamálum, skipulags- og byggingarmálum, fjöleignarhúsamálum og húsaleigumálum.

https://www.fasteignamal.is/

 
RSS straumur: RSS straumur