Ragnheiður Ríkharðsdóttir (oft kölluð Ragga Rikk hér í Mosfellsbæ), þingmaður pistlahöfundar í Kraganum og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, mætti ,,Í Bítið“ á Bylgjunni í morgun (28. apríl 2014) ásamt samstarfskonu sinni á Alþingi Svandísi Svavarsdóttur þingflokksformanni Vinstri grænna. Báðar mjög yndælar konur við bæði menn og dýr. Hélt Ragnheiður uppteknum hætti og sagðist áfram um aðild að […]
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sló á þráðinn til Pútín forseta, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi forseta Rússlands og sagðist ekki nenna að standa í þessu Úkraínumáli lengur. Bað hún Pútín um að hætta þessu hernaðarbrölti sínu við landamæri Úkraínu enda hefði hún enga skriðdreka að ráði lengur og enginn væri ógnin úr vestri nema helst það […]
Nýjar og mátulega staðfestar heimildir DV herma að búið sé að stofna dulda fésbókarsíðu ,,Nýja Sjálfstæðisflokksins“. Aðrar heimildir herma að aðstandendum framboðsins hafi áskotnast fjölda meðlima í kjölfar hrakfara Manchester United í meistaradeildinni í fótbolta á Englandi. Áhugi Manchester United stuðningsmanna á fótbolta dvínar ört á meðan sagt sé að fylgi hins nýja flokks vaxi […]
Það er greinilega orðið vandlifað bæði innan og utan Evrópusambandsins (ESB) fyrir evrópusambandssinna sem hafa áttað sig á því að smærri fyrirtæki, eins og fjármálafyrirtæki, geta varla vaxið né dafnað með sífellt hertari tilskipunum frá Brussel. Þetta er því orðið talsvert flóknara og yfirgripsmeira en Lovsamling for Island sem safnað var saman að frumkvæði Jóns […]
Við Íslendingar erum ekki öðruvísi en aðrar þjóðir en þessi litla þjóð virðist þó eiga heimsmet á hvern einstakling sem hér býr í fjölmörgum ,,keppnisgreinum“ ef svo má að orði komast. Fyrir utan hina vel þekktu hjarðhegðun, sem lýsa má með fótanuddtækinu, bumbubananum, soda-stream tækjakaupæðinu (hinu fyrra), hjólaskautahæðinu og hlutabréfakaupaæðinu hinu fyrra (2000-2003) og hinu […]
Skýrsla Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands um aðildarviðræður Íslands við ESB kom út í gær 7. apríl 2014 og var kynnt sérstaklega á Grand Hótel. Var skýrslan unnin fyrir Alþýðusamband Íslands, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands. Skýrslan er 134 síður og flokkast í eftirfarandi aðalkafla: Aðildarviðræður við ESB Efnahags- og peningamál Sjávarútvegsmál Landbúnaðarmál Staða og […]
Fit hostel stendur fyrir heiti á mjög áhugaverðri heimildarmynd sem sýnd var á RÚV í gærkveldi. Umfjöllunarefnið var aðbúnaður og líf hælisleitenda á Íslandi. Þar kom m.a. fram að af 600 hælisumsóknum á Íslandi á árabilinu 1991-2008 hafi aðeins 1 dvalarleyfi verið veitt þar sem einstaklingur flokkaðist sem flóttamaður og 53 dvalarleyfi sem veitt voru […]