Kæru Íslendingar.
Í dag var með þessum lögum HÉR samþykkt frá Alþingi Íslendinga að afnema fjármagnshöft í landinu.
Þessi fyrsti áfangi er stórkostlegt afrek en aðallega má rekja þennan árangur til staðfestu fyrrverandi forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Ekki má gleyma traustu samstarfsfólki hans og samstarfsflokki í ríkisstjórn en hann lagði upp með þetta sem var eitthvað er fáir höfðu trú á.
Því er tilefni til að fagna og þakka honum þennan árangur, þakka honum fyrir gott starf fyrir land og þjóð sem og öllum öðrum er lögðu þarna hönd á plóg.
Nú er bjart yfir Íslandi þrátt fyrir miklar rigningar þessi dægrin.
Til hamingju Íslendingar.