Fram á sjónarsviðið hafa stokkið hinar ýmsu mannvitsbrekkur og tjáð sig um lýðræði og mikilvægi þeirra kosninga sem afstaðnar eru.
Áhugaverðasti pistillinn, sem mest vit er í og hefur birst lengi varðandi þetta efni, má ætla að hafi birst í Fréttablaðinu í morgun eftir Sigurð Líndal lagaprófessor. Hann sagði kosningarnar hafa verið merkingalausar enda hefur starfshópur lögfræðinga á vegum ríkisstjórnarinnar ekki enn skilað af sér áliti varðandi tillögur Stjórnlagaráðs.
En hvað sögðu Jóhanna og Steingrímur eftir síðustu kosningar þar sem forseti lýðveldisins var kjörinn?
Jóhanna á orðið:
Það var náttúrulega dræm kosningaþátttaka og ég held að menn verði nú aðeins að horfa til þess og líta til þess að þarna eru mjög léleg kosningaþátttaka, sennilega sú næstversta sem þarna er fengin og menn verða auðvitað að horfa til þess.
Steingrímur á orðið:
Lítil kosningaþátttaka og þar með augljóslega mjög lágt hlutfall kosningabærra manna í landinu sem í reynd hefur kosið þann sem gegnir embættinu, þetta er allt umhugsunarefni.
Ágætu lesendur, þið vitið betur, mun betur enda hefur þjóðinni ávallt vegnað vel þegar Sjálfstæðisflokkurinn er við völd og það mun lítið breytast á þessari öld en á þeirri fyrri þegar Viðreisnarstjórnin komst til valda 1959. Þá var lýðræðið virkt og virt.
Nú þurfum við nýja viðreisn og hvetjum eðalkrata til að taka við Samfylkingunni af kommúnistum !
Hver vill ekki taka þátt í því?
Rita ummæli