Þegar farið er í framkvæmdir er mikilvægt að eigendur fjöleignarhúsa gæti réttra aðferða við þær. Boða þarf til húsfundar með lögmætum hætti og í fundarboði þarf að tilgreina þau mál sem fyrir verða tekin á fundinum og meginefni tillagna. Ekki er hægt að taka mál til atkvæðagreiðslu á húsfundi sem ekki hefur verið getið í […]
Í Vikulokunum segir Dagur B. Eggertsson að reglur frá ríkinu geri það að verkum að það hafi tekið um 3 ár að skipuleggja um 450 íbúðir í Úlfarsárdal. Það er ekki rétt. Það er ekkert í reglum sem gerir það að verkum að þetta ferli taki 3 ár. Hér er ferillinn sem þetta tók ef […]
Ljóst er að tjónið á húsi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) er gríðarlegt og enn er mörgum spurningum ósvarað. Nauðsynlegt er að upplýst verði hvernig brugðist var við skemmdum á húsinu frá byggingu þess, hvort hagsmuna eigenda OR hafi verið gætt þannig að hvorki var ástæða til að skoða og meta galla á húsinu fyrr eða hugsanlegan […]
Það hefur verið einkennilegt að fylgjast með upplýsingagjöf Orkuveitunnar vegna tjónsins á höfuðstöðvum OR að Bæjarhálsi 1. Föstudaginn 25. ágúst sl. er eingöngu talað um myglu og raka sem uppgötvaðist í september 2015. Eftir að fyrrverandi forstjóri OR mætir í viðtal á RÚV laugardaginn 26. ágúst og segir frá leka 2009 er sagt frá því […]
Á fundi borgarráðs í gær lögðu Framsókn og flugvallarvinir fram tillögu þar sem lagt er til að borgarráð skipi sérstaka úttektarnefnd vegna galla á húsi Orkuveitunnar en Reykjavíkurborg á tæp 94% í Orkuveitunni. Þar sem ljóst er að tjónið á húsi OR að Bæjarhálsi 1 er gríðarlegt er nauðsynlegt að upplýst verði hvernig staðið var að […]
Engin sýni voru tekin úr sjónum á tímabilinu 20. júní til 5. júlí meðan skólp rann út í sjóinn vegna bilunar í neyðarlúgu skólphreinsistöðvarinnar við Faxaskjól. Um er að ræða lengstu og alvarlegustu bilun sem orðið hefur á skólphreinsikerfinu frá upphafi. Það var fréttastofa RÚV sem upplýsti um málið miðvikudaginn 5. júlí sl. Á heimasíðu […]
Hátt veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar er áhyggjuefni. Bæði vegna þeirra sem í hlut eiga og kostnaðarins sem af því hlýst. Í svörum við fyrispurnum Framsóknar og flugvallarvina um veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar kemur fram að veikindahutfallið var 6,1% árið 2013, 6% árið 2014 og 5,9% árið 2015. Þó veikindahlutfallið fari lækkandi er það alltof hátt og langt […]
Ástandið er alvarlegt í grunnskólum og leikskólum borgarinnar og það verður að leysa. Lögboðnu skólastarfi er ekki unnt að sinna miðað við núverandi aðstæður og bitnar það á börnunum í borginni. Undanfarna daga hafa starfsmenn leik- og grunnskóla borgarinnar bent á að ástandið hafi aldrei verið jafn slæmt. Hafa bæði skólastjórar leik- og grunnskóla í […]
Meirihlutinn í borgarstjórn, þ.e. Samfylkingin, Píratar, Vinstri græn og Björt framtíð, vill ekki dælur fyrir eldsneyti á lóðum stórmarkaða og alls ekki að stórmarkaðir festist í sessi úti á Granda sem meirihlutinn telur jaðarsvæði. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær hafnaði meirihlutinn fyrirspurn að sett yrði upp sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti á Krónulóðina úti á […]
Í áliti umboðsmanns borgarbúa frá 3. júní sl. kemur fram í niðurstöðu hans um samninga bílastæðanefndar við Miðborgina okkar að það hafi verið verulega ámælisvert að samningarnir hafi verið gerðir án tillits til niðurstöðu hans í áliti frá 10. janúar 2014 enda bílastæðanefnd grandsöm um ólögmæti samninganna a.m.k. frá þeim tímapunkti þegar hann kynnti niðurstöðuna. Samningsgerðin […]