Grein þessi birtist í Fréttablaðinu 1. maí 2013 Íslenskur vinnumarkaður er auðlindadrifinn, framleiðni lág og vinnutími langur. Þannig má í stuttu máli draga saman niðurstöður greiningar McKinsey-ráðgjafahópsins, sem gaf frá sér skýrslu um hagsæld og vaxtarmöguleika Íslands síðastliðið haust. Sóknarfæri felast öðru fremur í eflingu hins alþjóðlega hluta vinnumarkaðarins, sem ekki er háður landfræðilegum auðlindum. […]
Undanfarið hafa heilbrigðis- og umönnunarstéttir hver af annarri stigið fram og krafist úrbóta vegna lélegra launakjara og mikils vinnuálags. Jafnframt hefur verið bent á slæmt ástand tækja- og húsbúnaðar á sjúkrastofnunum landsins. Almennt ríkir samstaða um nauðsyn þess að bæta úr hvoru tveggja. Enda gildir jafnt um mannauðinn og aðstöðuna, að ef sinnuleysi varir of […]
Nokkur eru þau lífsins gæði sem okkur Íslendingum hættir til að taka um of sem gefnum hlut. Þegar sagt er: „Hér er hreint vatn og hreint loft“ sakna ég þess iðulega að heyra í beinu framhaldi: „og það er á okkar ábyrgð að gæta þess vel svo það fari ekki forgörðum“. Undanfarið hefur mér virst við líta sömu […]