Fyrir dyrum er stjórnarmyndun eftir stutta en snarpa kosningabaráttu undanfarinna vikna í kjölfar endurreisnarinnar eftir Hrunið, þar sem enginn vissi hvort heldur hann var seldur eða gefinn. Margar leiðir virðast færar.
Skynsamlegasta leiðin – leið sem gæti sameinað þessa sundruðu þjóð – er þjóðstjórn – samlingsregering – eins og við Danir segjum.
Með því að atvinnustjórnmálamenn – alþingismenn sem þjóðin hefur kjörið – sameinist um að finna leiðir út úr vandanum, er von til þess að þessi voðalega þjóð þrjú hundruð þúsund sérvitra einstaklinga – geti litið á sig sem eina þjóð – er þjóðstjórn. Hafi stjórnmálamenn einhverju hlutverki að gegna, er það að finna sameiginlega leið til framtíðar. Sú leið verður aðeins fundin í þjóðstjórn þar sem allir bera ábyrgð.