Laugardagur 2.4.2016 - 12:22 - FB ummæli ()

„Enginn stóð hann að því að segja ósatt“

Í dag er til moldar borinn frá Grundtvigskirken á Bispebjerg Kaupmannahöfn Anker Jørgensen, fyrrum forsætisráðherra Dana og formaður Det Socialdemokratiske Parti. Anker Henrik Jørgensen fæddist á Christianshavn 1922. Faðir hans var kúskur, vörubílstjóri þess tíma, og móðir hans ræstitæknir, rengøringsdame. Báðir foreldrar hans dóu úr berklum þegar hann var barn að aldri og ólst hann upp hjá móðursystur sinni.

Anker Jørgensen gekk í Det Kongelige Vejsenhus Skole, sem stofnaður var 1727 fyrir börn fátækra foreldra, en lauk ekki prófi, heldur gerðist sendill og síðar lagermaður, tók á árum síðari heimstyrjaldarinnar virkan þátt í andspyrnuhreyfinunni og var árið 1968 kjörinn formaður félags ófaglærðra verkamanna, Dansk Arbejdsmands- og Specialarbejderforbund.

Eftir að Danir gengu í Evrópusambandið árið 1972 Anker tók við starfi forsætisráðherra eftir að Jens Otto Krag sagði óvænt af sér. Átti Anker Jørgensen fyrir höndum erfiða tíma í kjölfar olíukrísunnar og átaka heima og heiman á áttunda og níunda áratug aldarinnar. Um starf sitt sem forsætisráðherra skrifaði hann í bókunum: Bølgegang, Fra mine dagbøger 1972-75 (1989), I smult vande, Fra mine dagbøger 1975-77 (1989) og Brændinge, Fra mine dagbøger 1978-82 (1990). Þá skrifaði hann minningar sínar sem hann kallaði Fra Christianshavn til Christiansborg. Erindringer 1922-1972 (1994).

Í viðtali var eftir honum haft „at demokrati er simpelthen kompromisser” – lýðræði felur í sér málamiðlanir. Ritt Bjerregaard, sem lengi starfaði með Anker Jørgensen sagði um hann: „Ingen greb ham i at sige usandt og han vidste hvad det er ægte og hvad det er uægte”: Enginn stóð hann að því að segja ósatt, hann vissi hvað var ekta og hvað var óekta. Í eftirmælum hefur Anker Jørgensen verið kallaður forsætisráðherra fólksins. Þetta eru góð eftirmæli.

Flokkar: Stjónmál

Laugardagur 12.3.2016 - 19:21 - FB ummæli ()

Hvers er forsætisráðherra megnugur?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, núverandi forsætisráðherra, hefur enn vakið máls á því að reisa nýjan landspítala við Vífilsstaði, enda þótt fyrir liggi hönnun að nýjum og glæsilegum Landspítala við Hringbraut í hjarta höfuðborgarsvæðisins í næsta nágrenni Reykjavíkurflugvallar, sem ekki hverfur næsta aldarfjórðung, og í næsta nágrenni Háskóla Íslands, Íslenskrar erfðagreiningar, Háskóla Reykjavíkur og aðrar miðstöðvar vísindalegra, akademískra rannsókna – að ekki sé nú talað um, að þegar er hafin bygging á nýjum landspítala, spítala fyrir alla landsmenn, með stuðningi heilbrigðisráðherra.

Gert er ráð fyrir að spítalinn rísi í áföngum eftir því sem fjármagn leyfir, en skortur hefur verið á fjármagni til heilsugæslu og til menntakerfis eftir að ríkisstjórn – undir forystu nefnds Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar – lækkaði veiðigjald á útgerðarfyrirtækjum um milljarða sem nægt hefðu til að reisa nýjan landspítala á tveimur árum.

Óskiljanlegt er hvað vakir fyrir núverandi forsætisráðherra með þessu útspili, en vafalítið liggja duldir hagsmunir að baki, nema þetta sé eitt af undarlegum hugmyndum núverandi forsætisráðherra. Meðan hann skýrir ekki hugmyndir sínar á skiljanlegan hátt, tel ég þetta heimskulegt asnaspark sem ekki verður til annars en sundra þjóðinni og seinka nýjum landspítala.

Ef forsætisráðherra er hins vegar megnugur þess að skaffa fé til þess að hanna og reisa nýja landspítala á fáum árum, væri gott fyrir okkur félaga í samtökunum „Spítalinn okkar“ að fá að vita af þeim töfrabrögðum hans og þeirra flokksfélaga hans sem dregið hafa lappirnar í þessu máli frá upphafi.

 

Flokkar: Stjónmál

Miðvikudagur 17.2.2016 - 18:51 - FB ummæli ()

Sýning nemenda Verslunarskólans á Moulin Rouse

Nemendur Verslunarskóla Íslands sýna nú söngleikinn Moulin Rouge í Austurbæ undir stjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Aðstoðarleikstjóri er Birkir Ingimundarson, úr hópi nemenda skólans. Sýningin er í einu orði sagt frábær, raunar vandaðasta sýning framhaldsskólanemenda sem ég hef séð á langri ævi.

Söngleikurinn fjallar um hina einu sönnu ást, blekkingar, svik, peninga og völd. Ungur breskur rithöfundur kemur til Parísar árið 1899 og kemst í kynni við bóhema Montmartre og verður ástfanginn af gleðikonunni Satine, sem er helsta stjarna skemmtistaðarins Moulin Rouge, sem auk þess að vera dýr skemmtistaður er dýrt gleðihús með öllu sem fylgir, ofbeldi og yfirgangi gagnvart konum og keppni um peninga og völd – sem allt er alger andstaða hinnar sönnu ástar og sannrar vináttu.

Söngleikurinn hefur verið settur á svið víða um heim, auk þess sem gerðar hafa verið kvikmyndir eftir sögunni, nú síðast árið 2001 mynd með Nicole Kidman og Ewan McGregor í aðalhlutverkunum, þótt kvikmyndin frá 1952 undir stjórn John Hustons með Zasa Zasa Gabor og José Ferrer í aðalhlutverkum sé mér minnisstæðari.

Í sýningu Verslunarskólans leika Snædís Arnarsdóttir gleðikonuna og Teitur Gissurarson rithöfundinn. Að auki eru um 30 nemendur í sviðlistahópnum svo og sex manna hljómsveit auk 30 nemenda í undirnefndum sýningarinnar af ýmsu tagi. Leikarar gera hlutverkum sínum frábær skil og sviðslistarhópurinn dansar cancan á við hvaða hóp listamanna sem er og sýnir kunnáttu og fimi í breiki og stökkdansi af mikilli íþrótt.

Oft er talað um það sem afvega fer í samtíð okkar – og ekki að ástæðulausu. Hins vegar er minna talað um það sem vel er gert. Ungt fólk liggur einnig oft undir ámæli – eins og oft áður, enda trú margra að heimurinn hafi frá sköpun sífellt farið versnandi. Hins vegar er það sannast mála að við Íslendingar höfum aldrei átt betur menntað ungt fólk en nú, fólk sem hefur vilja og kjark til þess að fara aðrar og nýjar leiðir en þær sem gamla kynslóð okkar hefur farið. Sýning Verslunarskóla Íslands á söngleiknum Moulin Rouge er eitt dæmi um menntun, hæfileika og kjark ungs fólks á Íslandi.

Flokkar: Menning og listir

Laugardagur 9.1.2016 - 20:16 - FB ummæli ()

Ekki er vitið meira en guð gaf

Undarlegt var að lesa ummæli Kristófers Dignus, leikstjóra Áramótaskaups RÚV, sem Fréttablaðið hafði eftir honum í dag, laugardag 9da janúar 2016, þegar Kristófer Dignus, leikstjóri Áramótaskaups RÚV, segir umrætt grín „vera pínlegt og það eigi að vera þannig, enda vísi það til pínlegs atburðar á síðasta ári.“

Síðan er haft eftir Kristófer Dignus, leikstjóra Áramótaskaups RÚV, engan vera heilagan þegar kemur að gríni og grínið hafi verið góðlátlegt. Þetta eru orð heilags manns – sem sgir: ég hef ekki rangt fyrir mér. Og Kristófer Dignus klikkir út með því að segja: „Mér finnst ekki verið að sparka í liggjandi mann.”

Ekki er vit Kristófers Dignus, leikstjóra Áramótaskaups RÚV, meira en guð gaf honum í upphafi. Tillitssemi og virðing fyrir öðru fólki – ekki síst sem því fólki sem á undir högg að sækja – er grundvallarsetning þeirra sem virða mannréttindi og ástunda mannvirðingu – virðingu fyrir öðrum mönnum, körlum og konum. Í skjóli þess, sem Kristófer Dignus kallar grín, virðast heimskir menn og illa menntir – eins og hann – telja sig geta gert grín að hverju sem er.

Enginn er heilagur, segir Kristófer Dignus, dómari í sjálfs sín sök. Vera kann að enginn sé heilagur, en þegar níðst er á ógæfufólki í skemmtiþætti RÚV á gamlárskvöld, er það bæði heimskulegt, ber vitni um dómgreindarleysi og er ekki skemmtilegt. Engum heilvita manni dytti til að mynda í hug að gera gys að deyjandi barni, sjúkri konu eða drukknum manni í neyð – nema Kristófer Dignus, leikstjóra Áramótaskaups RÚV. Auk þessa alls var það brot á grundvallarreglum RÚV að birta skammarlegt viðtal við Sigurð Einarsson í fréttum á sínum tíma. Sigurður Einarsson fékk dóm á öðrum stað.

Skömm RÚV mun lengi í minnum höfð eftir ummæli dagskrárstjóra RÚV, Skarphéðins Guðmundssonar, sem segist ekki til umræði að biðja Sigurð Einarssonar afsökunar. Þessir menn, Skarphéðinn Guðmundsson og Kristófer Dignus mega skammast sín fyrir að hafa misnotað vald sem þeim hefur aldrei verið fengið í hendur.

Flokkar: Dægurmál · Menning og listir · Spaugilegt · Stjónmál

Föstudagur 18.12.2015 - 23:53 - FB ummæli ()

Íslensk tunga í útrýmingarhættu á „stafrænni öld“

Á heimasíðu Mennta- og menningarmálamálaráðuneytisins má lesa um rannsókn, sem gerð var af „fremstu máltæknisérfræðingum Evrópu“ og bendir til þess að flest Evrópumál, þar á meðal íslenska, eigi á hættu stafrænan dauða og séu í útrýmingarhættu á stafrænni öld.

Niðurstöður rannsóknarinnar eru birtar í Hvítbókaröð META-NET, sem er kallað evrópsk öndvegisnet (a Network of Excellence). Er rannsóknin unnin af meira en 200 sérfræðingum á 60 rannsóknarsetrum í 34 löndum, þ.á.m. Íslandi. (http://www.meta-net.eu/whitepapers).  Sérfræðingarnir lögðu mat á stöðu máltækni fyrir þrjátíu af um 80 tungumálum Evrópu á fjórum mismunandi sviðum: vélþýðingum, talsamskiptum, textagreiningu og aðgengi að mállegum gagnasöfnum. Sérfræðingarnir komust að þeirri niðurstöðu að stafrænn stuðningur við tuttugu og eitt af þessum 30 tungumálum væri lítill sem enginn á að minnsta kosti einu af þessum sviðum. Nokkur tungumál, m.a. íslenska, fá lægsta einkum á öllum sviðunum fjórum og lenti íslenska í næstneðsta sæti tungumálanna 30. Aðeins maltneska er talin standa verr að vígi og enska ein taldist hafa “góðan stuðning”.

Grundvöllur hinnar vísindalegu rannsóknar

Ekki er ljóst við hvað átt er með “stafrænni öld”, hvort orðin merkja einfaldlega einhvern tíma í framtíðinni eða á þessari öld – öld stafrænna samskipta. Merking þessara orða skiptir ekki öllu máli heldur hugsunin og aðferðin sem býr að baki rannsókninni, skilningur á hlutverki og stöðu tungumála svo og tilgangurinn með því að fullyrða, „að flest Evrópumál, þar á meðal íslenska, eigi á hættu stafrænan dauða” án þess að gerður sé nokkur fyrirvari annar en sá, að stafrænn stuðningur við tungumálin verði aukinn að mun.

Hlutverk tungumála

Tungumál er mikilsverðasta tjáningartækni mannlegs samfélags í öllum sínum margbreytilegum myndum. Með tungumálinu tjáum við skapandi hugsun okkar og tilfinningar, afstöðu og viðhorf og komum skilaboðum á framfæri í óteljandi myndum.

Bandaríski félagsfræðingurinn John Naisbitt gaf árið 1994 út bók sem hann nefndi Global Paradox, og ræðir þar aukin samskipti þjóða í verslun og viðskiptum, þjóðernisvitund, tungumál og styrk þjóðríkja og heldur því fram að því víðtækari, sem samvinna á sviði viðskipta og fjármála verði, þeim mun mikilsverðari verði hver einstaklingur. Þá telur hann að ný upplýsingatækni leysi alþjóðlega gjaldmiðla af hólmi og þýðingarvélar styrki einstakar þjóðtungur af því að alþjóðleg samskiptamál verði óþörf með þýðingarvélum. Um tungumálin segir John Naisbitt:

Því samtvinnaðra sem efnahagslíf heimsins verður, því fleira í umhverfi okkar verður alþjóðlegra. Það sem eftir stendur af þjóðlegum verðmætum verður hins vegar þeim mun mikilsverðara. Því alþjóðlegri, sem starfsumhverfi manna verður, því þjóðlegri verða menn í hugsun. Lítil málsamfélög í Evrópu hafa fengið nýja stöðu og aukinn styrk vegna þess að fólk leggur meiri rækt við menningarlega arfleifð sína til mótvægis við sameignlegan markað Evrópu.

John Naisbitt minnist sérstaklega á Íslendinga og íslensku og bendir á, að á Íslandi tali allir ensku og jafnvel önnur tungumál. Engu að síður varðveiti Íslendingar hreinleika íslenskunnar (“purity of the Icelandic language”) og byggi á gamalli lýðræðis- og bókmenntahefðhefð.

Íslenskt málstefna

Íslensk tunga mun áfram vega þyngst í varðveislu sjálfstæðrar menningar og stjórnarfarslegs fullveldis þjóðarinnar. Landfræðileg og menningarleg einangrun landsins, sem áður varð til þess að tungan hélt velli, dugar ekki lengur. Íslenskt þjóðfélag hefur ekki sömu sérstöðu og áður og alþjóðahyggja mótar viðhorf Íslendinga – ekki síst viðhorf ungs fólks sem eru meiri heimsborgarar og óbundnari heimahögum en fyrri kynslóðir, enda stundum talað um „hinn nýja Íslending” sem láti sér í léttu rúmi liggja hvar hann er búsettur og hvaða mál hann talar, aðeins ef hann hefur starf og laun við hæfi og getur lifað því lífi sem hann kýs.

Enginn vafi leikur á, að margvísleg hætta steðjar að íslenskri tungu. Af þeim sökum þurfa stjórnvöld – undir leiðsögn Mennta- og menningarmálaráðuneytisins – að móta opinbera málstefnu sem víðtækt samkomulag yrði um.  Til þess verður að efna til umræðu um íslenskt mál og íslenska málstefnu og þurfa sem flestir að taka þátt í þeirri umræðu auk stjórnvalda: rithöfundar og skáld, kennarar og skólayfirvöld, málvísindamenn, sagnfræðingar, bókmenntafræðingar og félagsfræðingar, læknar og lögfræðingar svo og fulltrúar atvinnulífs og viðskipta, enda hafa mörg fyrirtæki þegar sýnt íslenskri málrækt áhuga og skilning. Auk þess er sjálfsagt að efla máltækni fyrir íslenska tungu. Máltækni sker hins vegar ekki úr um líf nokkurrar þjóðtungu.

Flokkar: Menning og listir

Fimmtudagur 10.12.2015 - 21:38 - FB ummæli ()

Dauði íslenskrar tungu – og máltækni

Formælendur máltækni draga upp ófagra mynd af stöðu íslenskrar tungu og fullyrða, að ef ekkert verði að gert, sé íslensk tunga í bráðri lífshættu og verði ekki notuð í tómstundastarfi, framhaldsnámi og störfum tengdum ferðamönnum, eins og þeir orða þetta. Einn formælenda þessa hræðsluáróðurs segir á heimasíðu sinni:

Ég tel að íslenskan sé “dauð” ef við gerum ekkert. En dauðastríð hennar mun taka áratugi, og svipa til andláts latínu … Það er fyrirsjáanlegt að breytingar á notkun íslenskunnar munu gerast hratt og fljótlega gæti verið of seint að grípa í taumana – enda lifa yngstu kynslóðirnar í allt öðruvísu málumhverfi nú en bara fyrir áratug síðan. Þannig að það má með sanni segja að íslenskan geti átt stutt eftir.

Satt er og rétt að málumhverfi ungs fólks er annað en fyrir áratug, að ekki sé talað um fyrir hálfri öld eða 100 árum. En þjóðmálin hafa lagað sig að breyttum aðstæðum – breyttu málumhverfi, auk þess sem það er mikill misskilningur sérfræðinga í máltækni, að latína sé dautt mál. Latína lifir meðal þúsunda fólks, þótt hún sé ekki lengur mál nokkurs þjóðfélags eða lingva franca, sameiginlegt mál lærða manna um allan heim.

Þessi hræðsluáróður fulltrúa máltækni nær einnig til annarra landa, því að í greinargerð, sem Menntamálaráðuneytið birtir á heimasíðu sinni þar sem segir, að „rannsókn fremstu máltæknisérfræðinga Evrópu bendi til þess að flest Evrópumál séu í útrýningarhættu á stafrænni öld” – hvað sem „stafræn öld” kann að merkja. Þessi rannsókn er sögð unnin af meira en 200 sérfræðingum í máltækni og niðurstöður birtar í röð META-NET, 30 binda ritsafni sem bæði kemur út á prenti og er að finna á netinu, eins og þar segir. Minna má nú ekki gagn gera. Þegar hagsmunasamtök „fremstu máltæknisérfræðinga Evrópu” tala á þennan hátt, vakna sterkar grunsemdir.

Fulltrúar máltækni segja, að uppvaxandi kynslóð á Íslandi sé tvítyngd og hafi náð góðum tökum á ensku áður en þetta unga fólk er fullfært í íslensku. Þetta er víðs fjarri nokkrum sanni, sem tungumálakennarar í grunnskólum og framhaldsskólum staðfesta. Uppvaxandi kynslóð er ekki tvítyngd. Nokkur hluti ungs fólks (einkum drengir á kynþroskaaldri) bregður fyrir sig ensku, en getur ekki tjáð sig nema á takmörkuðum sviðum mannlegs samfélags á því góða heimsmáli.

Haft eftir danska teiknaranum og heimspekingnum Storm P: „Det er svært at spå, især om fremtiden.“ Sannarlega er erfitt að spá um framtíðina, en á grundvelli þess, að íslensk tunga hefur aldrei staðið sterkar sem lifandi þjóðtunga í margskiptu þjóðfélagi en nú, leyfi ég mér að spá því, að máltækni verði dauð, gleymd og grafin innan fárra ára, en íslenska og önnur Evrópumál muni lifa um ófyrisjáanlega framtíð. Leiðir til þess tala við farsímann sinn, bílinn, eldavélina, ískápinn og brauðristina verða heldur aldrei nema brot af málnotkun samfélagsins. Það þurfa postular máltækni – hvar sem þá er að finna – að átta sig á og þó einkum þurfa þeir að hugsa áður en þeir tala.

Flokkar: Menning og listir

Mánudagur 23.11.2015 - 13:49 - FB ummæli ()

Sundrungarvaldur

Enn einu sinni hefur Ólafur Ragnar Grímsson þjónað eigin lund í stað þess að þjóna grundvallarhlutverki forsetaembættisins: að vera sameiningartákn allrar þjóðarinnar og hógvær og friðflytjandi sem talar af reynslu og þekkingu.

Með því að láta orð falla í þá veru, að mesta ógn okkar tíma sé öfgafullt íslam og vandinn verði ekki leystur með barnalegri einfeldni vekur hann sundrungu og tortryggni og hefur þá gleymt fyrri orðum sínum: að hlýnun jarðar væri mesta ógn mannkyns, eins og hann sagði í sumar leið.

Ólafur Ragnar Grímsson hlýtur einnig að tala gegn betri vitund sem gamall prófessor í stjórnmálafræði, að ekki sé minnst á þekkingu sem hann á að hafa hlotið með stjórnmálastarfi sínu: í miðstjórn Framsóknarflokksins, formaður framkvæmdastjórnar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, formaður framkvæmdastjórnar og formaður Alþýðubandalagsins, fulltrúi á þingi Evrópuráðsins, ritstjóri Þjóðviljans og forseti alþjóðlegu þingmannasamtakanna Parliamentarians for Global Action, svo eitthvað sé nefnt.

Á grundvelli þessarar þekkingar ætti Ólafur Ragnar Grímsson og sem gamall jafnaðarmaður að vita að mesta ógn heimsins er misrétti, mismunun, fátækt og umkomuleysi milljóna manna og auðsöfnun í skjóli hervalds.

Fyrir áratug var gerð athugun á fjölda múslíma í Danmörku. Í ljós kom að um 200 þúsund múslímar væru búsettir í landinu. Þar af voru um 20 þúsund taldir trúaðir múslímar, þ.e.a.s. iðkuðu daglega trúarathafnir múslíma, en um 2000 – tvö þúsund – sem kalla mætti rétttrúaða múslíma – fúndamentalista. Af þessum 2000 væru innan við eitt hundrað sem talist gætu ofstækisfullir múslímar.

Ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar um múslíma eru því röng á saman hátt og ef sagt væri að mesta ógn okkar tíma sé öfgafull trú kristinna manna. Vandi heimsins verður sannarlega ekki leystur með barnalegri einfeldni og því síður með heimskulegum ummælum, óvarlegum orðum og sundrungartali.

Flokkar: Stjónmál

Mánudagur 16.11.2015 - 12:24 - FB ummæli ()

Myndin af Jónasi Hallgrímssyni

Dagur íslenskrar tungu er tengdur nafni Jónasar Hallgrímssonar, listaskáldsins góða, fyrsta nútímaskálds Íslendinga sem fann fegurð íslenskrar náttúru og sameinaði íslenska ljóðhefð og erlend kveðskaparlist.

Jónas Hallgrímsson dó 26. maí 1845 á Friðriksspítala í Kaupmannahöfn. Árið eftir birtist í Nýjum félagsritum kvæði, níu erindi undir ferskeyttum hætti, eftir Grím Thomsen frá Bessastöðum á Álftanesi. Kvæðið nefndi Grímur einfaldlega Jónas Hallgrímsson. Tvö lokaerindi kvæðisins hljóða þannig:

 

Íslands varstu óskabarn,

úr þess faðmi tekinn,

og út á lífsins eyðihjarn

örlagasvipum rekinn.

Langt frá þinni feðra fold,

fóstru þinna ljóða,

ertu nú lagður lágt í mold,

listaskáldið góða.

Talið var að engin mynd hefði verið gerð af Jónasi Hallgrímssyni í lifanda lífi. Sú mynd sem notast er við, er vangamynd sem birtist framan við Ljóðmæli og önnur rit eptir Jónas Hallgrímsson sem Hið íslenska bókmenntafélag gaf út í Kaupmannahöfn 1883. Myndin er steinprent gerð af ónefndum starfsmanni í prentverki Hoffensberg & Traps Etablissement, þar sem ljóðmælin voru prentuð.

Steinprentið er hins vegar gert eftir ljósmynd af teikningu sem Sigurður málari dró upp árið 1860 og varðveitt er í Ljósmyndasafni Íslands. Myndina gerði Sigurður eftir blýantsteikningu, vangamynd, sem séra Helgi Sigurðsson á Melum i Melasveit dró upp af Jónasi þar sem hann lá á líkbörum á Friðriksspítala í maí 1845.

Frá blýantsteikningu séra Helga til steinprentsins frá árinu 1883 er því löng leið og milliliðir tveir: teikning Sigurðar málara og ljósmynd af þeirri teikningu. Þess er því varla að vænta að myndin, sem við höfum fyrir augunum, sé lík manninum Jónasi Hallgrímsyni eins og hann var í lifanda lífi, enda sögðu frændur hans í Eyjafirði steinprentið framan við ljóðmælin 1883 minna lítið á hann og „verið á móti myndinni”.

En til er önnur teikning eftir séra Helga af Jónasi sem gerð er með myndvarpa þess tíma, Camera lucida sem notuð var sem ljósmyndavél, enda séra Helgi fyrsti menntaði ljósmyndari Íslendinga. Myndin er sennilega gerð daginn áður en Jónas lést og ljóst að hún ber svipmót lifandi manns – er af lifandi manni.

Það er kominn tími til á 170. ártíð Jónasar Hallgrímssonar að farið sé að nota myndina sem gerð var af honum lifandi til þess að sýna að hann lifir enn.

 

Flokkar: Menning og listir

Laugardagur 3.10.2015 - 09:19 - FB ummæli ()

Konur og aðrir sólbaðsstofunuddarar

Gamall og góður nemandi minn úr Menntaskólanum í Reykjavík fyrir hartnær hálfri öld, Jón Steinar Gunnlausson, lögmaður og fyrrum dómari við Hæstarétt Íslands, skrifar grein í Morgunblaðið 28. f.m. um, hvernig nú skuli skipa í Hæstarétt. Telur Jón Steinar marga álíta „að þar ættu helst að sitja dómarar sem talist gætu einhvers konar „þverskurður” af fólkinu í landinu! Í öllu talinu felst einhvers konar grundvallarmisskilningur á starfsemi dómstóla.”

Réttarfar í landinu er of mikilsverður þáttur nútímalýðræðis, þar sem gilda skal jafnrétti og jafnræði á öllum sviðum, til þess að lögfræðingar, lögmenn og hæstaréttardómarar fjalli einir um það mál. Af þeim sökum leyfi ég mér sem gamall kennari að leggja orð í belg.

Andstætt því sem Jón Steinar álítur grundvallarmisskilning – að krefjast þess að í Hæstarétti sitji „dómarar sem talist gætu einhvers konar „þverskurður” af fólkinu í landinu”, tel ég að einmitt þannig ætti það að vera, þ.e.a.s. að í Hæstarétti sitji karlar og konur, afkomendur iðnaðarmanna, verkamanna og sjómanna – og sólbaðstofunuddara, en ekki aðeins nemendur Menntaskólans í Reykjavík úr fyrstu stétt, aldir upp í Vesturbænum eða Hlíðunum.

Jón Steinar segir, að dómstólar eigi að leysa úr réttarágreiningi milli manna og beri að dæma einungis eftir lögum – nema hvað, enda sé það í reynd forsenda fyrir starfi dómstóla „að hin lagalega rétta niðurstaða sé aðeins ein”. Þar fór hins vegar í verra, Jón Steinar, vegna þess sem þú bendir réttilega á, að oft þarf „á mikilli hæfni að halda því leitin er stundum ekki einföld og menn kann að greina á um niðurstöður hennar”. Þetta er mergurinn málsins: „Allt orkar tvímælis þá gert er”, eins og haft er eftir lögvitringnum Njáli á Bergþórshvoli. Auk þess sjá augu betur en auga. Auk þess þarf að taka tillit til ólíkra viðhorfa þegar leyst er úr ágreiningi manna. Og þótt ekki væri nema af þeim sökum eiga í Hæstarétti að sitja dómarar sem talist gætu einhvers konar þverskurður af fólkinu í landinu.

Jón Steinar segir að í „hópi þeirra sem kallast mega [takið eftir orðalaginu: kallast mega] lögfræðingar er margur misjafn sauðurinn. Við viljum ekki að aðrir en þeir hæfustu fái í hendur völd til að kveða upp dóma í málefnum fólksins í landinu. … Í því efni skiptir kynferði dómara engu máli.”

Öllum mun ljóst vera, að í „hópi þeirra sem kallast mega lögfræðingar er margur misjafn sauðurinn” og af þeim sökum „viljum við” að þeir hæfustu fái í hendur það mikilsverða þjónustuhlutverk – ekki völd – til að kveða upp dóma í málefnum fólksins í landinu. En í því efni skiptir kynferði dómara máli. Konur og karlar hafa nefnilega ólík viðhorf vegna kynferðis síns.

Krafa nútíma lýðræðis á Vesturlöndum er að konur komi alls staðar að málum þar sem velferð okkar og örlög eru ráðin. Og meðan sjónarmið á borð við skoðanir Jóns Steinars eru enn við lýði að bera saman “lækna, iðnaðarmenn, verkamenn, veitingamenn og sólbaðstofunuddara” annars vegar og konur hins vegar, er eina leiðin að alls staðar þar sem velferð okkar og örlög eru ráðin sé viðhafður kynjakvóti – og þá meðal annars og ekki síst í Hæstarétti Íslendinga. Nóg er til af hæfum konum í hópi þeirra sem kallast mega lögfræðingar.

 

Flokkar: Stjónmál

Fimmtudagur 24.9.2015 - 10:09 - FB ummæli ()

Tungumál í útrýmingarhættu

Talið er að nær helmingur af um 6000 tungumálum heimsins séu í útrýmingarhættu. Flest þessara tungumála eru töluð af færri en tíu þúsund málnotendum. Margar ástæður eru fyrir því að þessi tungumál eru í útrýmingarhættu: fámenni og veik staða tungumálsins af þeim sökum, fátækt ritmál, styrjaldarátök og fólksflótti frá aðþrengdum landsvæðum og átakasvæðum, þar sem tungumálin eru töluð, áhrif frá fjölmennum – „sterkum” tungumálum – og nú síðast ný samskiptatækni af ýmsu tagi og sér þar enginn fyrir endann á.

Víða eru sérfræðingar í máltækni og málfræðingar að þróa þessa nýju samskiptatækni þar á meðal nýtt tölvuviðmót sem getur skilið náttúruleg tungumál, sem svo eru kölluð. Er stefnt að því að tungumál verði í framtíðinni eingöngu notuð í samskiptum við tölvur og tölvubúnað eins og farsíma, bifreiðar og jafnvel eldavélar og ísskápa!

Málfræðingar og sérfræðingar í máltækni hafa nú bent á, að íslensk tunga sé illa undir þessa byltingu búin og geti átt undir högg að sækja á næstu árum og áratugum vegna þessarar nýju samskiptatækni, m.a. vegna raddstýringar við hvers konar tölvubúnað.

Staða íslenskrar tungu getur engu að síður talist sterk – enn sem komið er. Málið er í fyrsta lagi talað af liðlega 300 þúsund manns og Ísland er því langt því frá að vera meðal fámennustu málsvæða heimsins. Staða tungunnar er einnig sterk vegna áhuga almennings og stjórnvalda á málrækt og málvöndun. Staða tungunnar er einnig sterk vegna þess að á íslensku eru til gamlar og nýjar bókmenntir og orðlist af ýmsu tagi og bætist stöðugt í þann sarp. Fólksflótti er enginn frá landinu og landið er „langt frá heimsins vígaslóð”.

En ef til vill þurfum við Íslendingar þó að vera á varðbergi og hugsa okkar ráð. Um árabil hafa börn og unglingar setið langtímum saman fyrir framan tölvur þar sem samskipti fara fram á ensku á lyklaborði, s.s. í tölvuleikjum og samskiptamiðlum af ýmsu tagi, enda eru mörg íslensk börn og unglingar orðin vel mælt á „þessa” ensku, þ.e. tölvuensku, jafnvel áður en þau taka til að læra sjálft heimsmálið í grunnskóla.

Enginn vafi leikur á að í framtíðinni verða íslenskt börn og unglingar – svo og fullorðið fólk – að nota „náttúrulegt tungumál” til þess að stjórna tölvum, farsímum og bílum. Í fljótu bragði kann að sýnast auðveldast og ódýrast – í aurum talið – að nota heimsmálið ensku. Hins vegar rýrði slíkt íslensku og gengi gegn íslenskri málstefnu, en aðalmarkmið hennar er „að tryggja að íslenska verði áfram notuð á öllum sviðum íslensks samfélags”.

Lítill vafi virðist leika á, að Íslendingum er vandi á höndum af þessum sökum. Ef ekkert verður að gert, er sú hætta fyrir hendi að íslenska – eins og önnur mál – líði undir lok áður en 21. öldin – öld tölvu og tækni – er liðin í aldanna skaut.

VIKUDAGUR 24. september 2015

Flokkar: Menning og listir

Höfundur

Tryggvi Gíslason
Akureyringur, fæddur á Norðfirði 1938, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1958, magister í íslensku frá Háskóla Íslands 1968 með málfræði sem sérgrein, fréttamaður við Ríkisútvarpið, lektor við Universitetet i Bergen 1968-1972, deildarstjóri í skóla- og menningarmáladeild Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn 1986-1990, skólameistari Menntaskólans á Akureyri 1972-1986/1990-2003. Starfa sem fræðimaður og þýðandi.
RSS straumur: RSS straumur

Tenglar