Ofangreind setning er úr Hjalla-orðabókinni minni og kom ósjálfrátt upp í hugann þegar ég sá heilsíðuauglýsingu með mynd af borgarstjóra Reykjavíkur að hvetja til samskota fyrir líknarfélag í Fréttablaðinu í dag.
Næsta setning kom úr áramótaskaupinu: Það er eitthvað svooo rangt við þetta…
Eða hvernig ná menn heilli brú út úr eftirfarandi:
-Landspítalinn er svo fjársveltur að velunnarar kvenlækninga og fæðingarþjónustu stofna styrktarfélag til að kaupa tæki og bæta aðbúnað sjúklinga
-Efnt er til fjársöfnunar meðal almennings, á sama tíma og framlög úr almannasjóðum eru skert
-Borgarstjórinn í Reykjavík, sem um þessar stundir stendur með niðurskurðarhnífinn á lofti yfir barnagæslu, kennslu og uppfóstran barna – með öðrum orðum aðbúnaði og lífskjörum ungra barnafjölskyldna – pósar á mynd til að styðja við fjársöfnun
-sem er ætlað að púkka upp á opinbera þjónustu
-sem verið er að skera niður!
Ég næ a.m.k. ekki samhenginu – en vona þó að söfnunin gangi vel