Stundum virðist gleymast að Reykjavík er höfuðborg Íslands og hefur hlutverki að gegna sem höfuðborg allra landsmanna. Stefna núverandi meirihluta í borgarstjórn er enn eitt dæmið um þessa gleymsku þegar stefnt er að því að leggja Reykjavíkurflugvöll niður fyrir 2030 til þess að byggja nokkur þúsund manna byggð í Vatnsmýrinni, enda þótt nægilegt byggingarland sé annars staðar á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem með þessu væri er raskað áratuga gamalli borgarmynd.
Með því að leggja Reykjavíkurflugvöll niður er fótunum kippt undan innanlandsflugi og öryggi landsbyggðar rýrt að miklum mun auk þess sem æfingarflug er gert hornreka. Ofan í kaupið veit enginn hvar nýr flugvöllur ætti síðan að koma.
Þetta háttarlag núverandi borgarstjórnarmeirihluta gerir það enn brýnna en áður að taka skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins til algerrar endurskoðunar og endurskoða samskipti og samvinnu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Hins vegar virðist nýr og skeleggur innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, ætla taka hér í taumana, ræða við hlutaðeigandi og leysa málið á farsælan hátt.