Eftir að Sjálfstæðisflokkur galt afhroð í kosningum 1978 komu nokkrir fulltrúar ungliðahreyfingar flokksins að máli við Gunnar Thoroddsen varaformann flokksins um að hann myndi víkja stöðu. Gunnar tók vel í málaleitan ungliðanna að einu atriði uppfylltu, að bætt yrði við í skipulagsreglur flokksins eftirfarandi ákvæði:
Nú hefur formaður flokksins tapað kosningum og skal þá varaformaðurinn víkja.
Ekki reyndist þörf á að ræða þessa tillögu frekar.
Nýlega lagði dómsmálaráðherra fyrir Alþingi nafnalista yfir umsækjendur um dómarastöður að uppfylltu hæfismati og í anda tíðarandans – um jöfn kynjahlutföll sem Alþingi samþykkti án fyrirvara eða athugasemda þann 1. júní 2017. Um var að ræða lítilsháttar breytingu frá lista sem hæfisnefnd sem dómarar í Hæstarétti höfðu valið án rökstuðnings.
Niðurstaða um þriðjungs þingmanna sem oft er tíðrætt um virðingu Alþingis var að þar sem Alþingi hefði þarna tapað málinu þyrfti ráðherrann að víkja.

Arnar Sigurðsson