Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Laugardagur 08.10 2011 - 18:28

Mannauðsmál ríkisins í kreppu

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu þann 8. október 2011. Nýútkomin skýrsla Ríkisendurskoðunar dregur fram helstu ógnir og veikleika í mannauðsmálum ríkisins. Ábendingar eru gerðar til fjármálaráðuneytisins í tíu liðum sem segja í stuttu máli þetta: – Afmarka þarf framtíðarverkefni ríkisins og meta hvers konar mannafla þarf til að framkvæma þau. – Ríkið þarf að tileinka […]

Þriðjudagur 15.02 2011 - 12:17

Kæri vinur, Jón Gnarr – ertu nokkuð að ruglast?

Ofangreind setning er úr Hjalla-orðabókinni minni og kom ósjálfrátt upp í hugann þegar ég sá heilsíðuauglýsingu með mynd af borgarstjóra Reykjavíkur að hvetja til samskota fyrir líknarfélag í Fréttablaðinu í dag.  Næsta setning kom úr áramótaskaupinu: Það er eitthvað svooo rangt við þetta… Eða hvernig ná menn heilli brú út úr eftirfarandi: -Landspítalinn er svo fjársveltur að velunnarar […]

Mánudagur 31.01 2011 - 22:23

Tónlistarskólar – uppeldi og lífsleikni

Ég er ein þeirra fjölmörgu sem er alin upp í tónlistarskóla, þótt ég hafi ekki orðið tónlistarmaður. Meðal þess sem tónlistarnám og tónlistarástundun hefur kennt mér (auk þess að blása í lúður og lesa nótur) er: – að ganga í takt.  Maður skyldi ekki gera lítið úr þeim eiginleika að kunna að fylgja takti, að hlusta […]

Fimmtudagur 25.11 2010 - 09:37

Educated by Iceland

Háskólamenntaðir launamenn hafa orðið hart úti í aðhaldsaðgerðum hins opinbera eftir hrun og búið við skert launakjör jafnt á almennum sem opinberum vinnumarkaði.  Félagsmenn aðildarfélaga BHM eru millitekjufólk og hafa ekki þótt þurfa vernd í þrengingum, þvert á móti eru úrræði sniðin að því að þeir beri stóran hluta kostnaðar.  Nægir þar að nefna skattabreytingar, […]

Miðvikudagur 10.11 2010 - 15:13

Allt um móður mína

Í minni orðabók er móðir kona sem sinnir börnum og búi, heldur utan um fjölskyldutengsl og önnur vensl, starfar margt innan veggja heimilisins og vinnur – síðast en ekki síst – „úti“ af hugsjón, atorku og heilindum.  Mömmur vinna og ömmur vinna, í nútímanum er það regla en ekki undantekning. Nú vill svo illa til að hið launaða starf minnar móður […]

Sunnudagur 24.10 2010 - 22:04

Besta jafnrétti í heimi (miðað við höfðatölu)

Nokkur eru þau lífsins gæði sem okkur Íslendingum hættir til að taka um of sem gefnum hlut.   Þegar sagt er:  „Hér er hreint vatn og hreint loft“ sakna ég þess iðulega að heyra í beinu framhaldi: „og það er á okkar ábyrgð að gæta þess vel svo það fari ekki forgörðum“.  Undanfarið hefur mér virst við líta sömu […]

Mánudagur 18.10 2010 - 15:23

Orlofshúsadraugurinn

Stéttarfélög og verkalýðshreyfing eru til vegna félagsmannanna, ekki fyrir forystuna og ekki fyrir neina hagsmuni aðra. Þar af leiðandi tek ég gagnrýni á störf hreyfingarinnar fagnandi, enda mikilvægt að hver sá sem tilheyrir slíku samfélagi veiti því athygli og aðhald. En eitt finnst mér alltaf jafnóþolandi – og jafnvel meira pirrandi eftir því sem ég […]

Föstudagur 15.10 2010 - 15:49

Tölur eða tilfinningar?

Mér finnst koma skýrar í ljós með hverjum deginum að okkur skortir sárlega mikilvægar upplýsingar í umræðunni um vanda þjóðarinnar og mögulegar lausnir sem svo löngu þyrftu að vera orðnar að raunveruleika. Ég held að ég þurfi ekkert sérstaklega að ræða um misvísandi málflutning þar sem einn segir himinn á meðan annar segir haf.  Varla […]

Fimmtudagur 14.10 2010 - 11:10

Rústabjörgun

Í dag heyrist úr ýmsum meinhornum að ef námuslysið í Chile hefði átt sér stað hér, væru menn enn að deila um réttar eða rangar björgunaraðgerðir og „færar leiðir“. Á minni kaffistofu voru menn ekki sammála þessu, því ef það væri eitthvað sem Íslendingar kynnu, væri það að bjarga fólki í neyð. En samt – […]

Miðvikudagur 13.10 2010 - 09:45

Sjálfkviknun lífs

Einhvern veginn læðist að manni sú hugsun við lestur predikana heittrúaðra um rétta leið skuldsettrar þjóðar út úr kreppu (á borð við: „skattleggið allt kvikt og ókvikt og leggið að því loknu á það gjöld og mun þá landið rísa af sjálfu sér undan ört hækkandi yfirborði ríkiskassans…“ og „brettið nú upp ermar og virkið öll fallvötn og […]

Höfundur

Guðlaug Kristjánsdóttir
Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
RSS straumur: RSS straumur