Það er blásið til mótmæla um alla Evrópu á morgun, 29 maí. Krafan er aukið lýðræði og frekari aðkomu að ákvörðunum sem hafa með Evrópubúa að gera. Það er nokkuð ljóst að heimasíða Evrópusambandsins dugar ekki. Það er verið að mótmæla því að tap einkageirans og sér í lagi bankakerfisins sé lagt á herðar almennings. […]
Landlæknir var í kastljósinu í fyrrakvöld. Þar sem ég er starfsbróðir hans læt ég nægja að segja að hann hefði getað staðið sig betur. Mér er ekki fyllilega ljóst eftir þáttinn hvort fylgst er með okkur í rauntíma eða eftir á. Sjálfsagt get ég hringt í embættið og komist að því. Hitt veit ég að […]
Lýðræði er augljóslega að þvælast fyrir þeim erfiðu og þungbæru ákvörðunum sem stjórnmálaelítan þarf að taka fyrir hönd bankaelítunnar um víða veröld. Það er einnig augljóst að mikil togstreita er á milli almennings sem vill hafa meiri völd og elítunnar sem vill stjórna öllu með fámennum fundum handvalinna. Hugmyndin er að hafa valdið þrískipt, dómsvald, […]
Umræðan um skýrslu fjármálaráðuneytisins er mjög sorgleg og þungbær. Eftir því sem merking upplýsinganna sekkur dýpra í sálina þá gerir maður sér betur grein fyrir svikunum. Ekki það að maður hafi ekki haft sínar grunsemdir. Upplifun flestra hefur verið að bankar hafi fengið að ganga fram af fullri hörku án afskipta stjórnvalda. Núna er skýringin […]
Í gegnum tíðina hafa margir aðilar tjáð sig um ábyrgð banka á tilverunni. Eftir bankahrunið haustið 2008 hefur sú umræða verið vaxandi. Nú er svo komið að mjög mikið af fréttum snúast um óeðlilegt hátterni þeirra. Skýrslur eru skrifaðar og margir tjá sig á netinu. Að auki hafa dómstólar dæmt þá seka fyrir lögbrot gegn […]
Árni Páll ráðherra líkti verðbólgunni við hitamæli. Hann sagði að það hjálpaði lítið að þrasa við hitamælinn. Þar sem verð á vörum hækkar þá sé verðbólga. Hann vill líta á verðbólguna sem náttúrufyrirbrigði sem á sinn tilverurétt. Hann er því samt sammála að reyna að minnka neikvæð áhrif verðbólgunnar á almenning. Kenningin er sú að […]
Undanfarið hafa menn velt því fyrir sér hvort betra sé fyrir Grikki að taka upp gömlu drökmuna sína og hætta þá við að nota evru. Svipuð umræða hefur verið um kosti og galla íslensku krónunnar gagnvart evrunni. Vandamálið við peninga er að þeir eru misskildir og misnotaðir. Í raun skiptir engu máli hvað peningurinn heitir […]
Gagnsæi í íslenskri stjórnsýslu sogast óðum ofan í firrta stofnanahyggju valdstéttarinnar. Þegar nýtt kvótafrumvarp er kynnt til sögunnar er þjóðin lang aftast á listanum yfir þá sem fá að lesa frumvarpið. Í staðin erum við mötuð eins og óvitar af fyrirfram matreiddum fréttum af hvað stendur hugsanlega í frumvarpinu. Leikritið spilast fumlaust fyrir framan alþjóð, […]
Flókin stærðfræðimódel hagfræðinnar hafa þann eina tilgang að telja okkur trú um að hagkerfið ráði við óendalega miklar skuldir. Á þann hátt horfum við fram hjá grundvallaratriðum hagfræðinnar sem snýr að rekstri eininga eins og heimilis sem dæmi. Þar sem hagfræðikenningar nútímans ganga út á það að hægt sé að greiða allar skuldir er augljóst […]
Það eru viss tímamót í uppsiglingu á Íslandi. Nýir kjarasamningar til þriggja ára voru samþykktir um daginn ásamt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana. Með þessum skjölum er kominn fram nálgun hvernig verður að búa á Íslandi á næstunni. Við skulum glugga aðeins í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. „Þau helstu eru að fjármálakerfið hefur verið endurreist, markmið […]