Í dag hefst fastan. Sú skemmtilega hefð hefur skapast á Íslandi að á föstunni eru Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir. Það er hollt fyrir okkur nútímafólkið að lesa þennan merka skáldskap og margir viskumolar sem ættu að vekja okkur til umhugsunar.
Í tilefni dagsins ákvað ég að birta fyrsta sálm Passíusálmanna – „Um herrans Kristí útgang í grasgarðinn“.
1. sálmur: Um herrans Kristí útgang í grasgarðinn
- 1
- Upp, upp, mín sál og allt mitt geð,
- upp mitt hjarta og rómur með,
- hugur og tunga hjálpi til.
- Herrans pínu ég minnast vil.
- 2
- Sankti Páll skipar skyldu þá,
- skulum vér allir jörðu á
- kunngjöra þá kvöl og dapran deyð,
- sem drottinn fyrir oss auma leið.
- 3
- Ljúfan Jesúm til lausnar mér
- langaði víst að deyja hér.
- Mig skyldi og lysta að minnast þess
- mínum drottni til þakklætis.
- 4
- Innra mig loksins angrið sker,
- æ, hvað er lítil rækt í mér.
- Jesús er kvalinn í minn stað.
- Of sjaldan hef ég minnst á það.
- 5
- Sál mín, skoðum þá sætu fórn,
- sem hefur oss við guð, drottin vorn,
- fordæmda aftur forlíkað.
- Fögnuður er að hugsa um það.
- 6
- Hvað stillir betur hjartans böl
- en heilög drottins pína og kvöl?
- Hvað heftir framar hneyksli og synd
- en herrans Jesú blóðug mynd?
- 7
- Hvar fær þú glöggvar, sál mín, séð
- sanna guðs ástar hjartageð,
- sem faðir gæskunnar fékk til mín,
- framar en hér í Jesú pín?
- 8
- Ó, Jesú, gef þinn anda mér,
- allt svo verði til dýrðar þér
- uppteiknað, sungið, sagt og téð.
- Síðan þess aðrir njóti með.
- 9
- Að liðinni máltíð lofsönginn
- las sínum föður Jesús minn.
- Síðasta kvöldið seint það var.
- Sungu með hans lærisveinar.
- 10
- Guðs sonur, sá sem sannleiks ráð
- sjálfur átti á himni og láð,
- þáði sitt brauð með þakkargjörð,
- þegar hann umgekkst hér á jörð.
- 11
- Þurfamaður ert þú, mín sál,
- þiggur af drottni sérhvert mál,
- fæðu þína og fóstrið allt.
- Fyrir það honum þakka skalt.
- 12
- Illum þræl er það eilíf smán,
- ef hann þiggur svo herrans lán
- drambsamlega og dreissar sig.
- Drottinn geymi frá slíku mig.
- 13
- Eftir þann söng, en ekki fyrr,
- út gekk Jesús um hússins dyr.
- Að hans siðvenju er það skeð.
- Til Olíufjallsins ganga réð.
- 14
- Lausnarans venju lær og halt,
- lofa þinn guð og dýrka skalt.
- Bænarlaus aldrei byrjuð sé
- burtför af þínu heimili.
- 15
- Yfir um Kedrons breiðan bekk
- blessaður þá með sveinum gekk.
- Sá lækur nafn af sorta ber.
- Sýnir það góðan lærdóm mér.
- 16
- Yfir hörmungar er mín leið,
- æ meðan varir lífsins skeið.
- Undan gekk Jesús, eftir ég
- á þann að feta raunaveg.
- 17
- Horfi ég nú í huga mér,
- herra minn Jesú, eftir þér.
- Dásamleg eru dæmin þín.
- Dreg ég þau gjarnan heim til mín.
- 18
- Þú vildir ekki upphlaup hart
- yrði, þegar þú gripinn vart.
- Út í grasgarðinn gekkstu því.
- Gafst þig í manna hendur frí.
- 19
- Af því læri eg að elska ei frekt
- eigin gagn mitt, svo friður og spekt
- þess vegna raskist. Þér er kært
- þolinmæði og geð hógvært.
- 20
- Sorgandi gekkstu sagða leið.
- Særði þitt hjarta kvöl og neyð.
- Hlæjandi glæpa hljóp ég stig.
- Hefur þú borgað fyrir mig.
- 21
- Vort líf er grasgarðs ganga rétt.
- Gröfin er öllum takmark sett.
- Syndugra leið ei leik þér að.
- Lendir hún víst í kvalastað.
- 22
- Iðrunartárin ættu vor
- öll hér að væta lífsins spor.
- Gegnum dauðann með gleði og lyst
- göngum vér þá í himnavist.
- 23
- Þá Jesús nú á veginum var,
- við postulana hann ræddi þar,
- henda mundi þá hrösun fljót.
- Harðlega Pétur þrætti á mót.
- 24
- Frelsarinn Jesús fyrir sér
- þá fall og hrösun er búin mér.
- Hann veit og líka lækning þá,
- sem leysa kann mig sorgum frá.
- 25
- Aldrei, kvað Pétur, ætla ég
- á þér hneykslast á nokkurn veg
- þó allir frá þér falli nú. –
- Fullkomleg var hans lofun sú.
- 26
- Sú von er bæði völt og myrk
- að voga freklega á holdsins styrk.
- Án guðs náðar er allt vort traust
- óstöðugt, veikt og hjálparlaust.
- 27
- Gef mér, Jesú, að gá að því,
- glaskeri ber ég minn fésjóð í.
- Viðvörun þína virði eg mest,
- veikleika holdsins sér þú best.
„Bænarlaus aldrei byrjuð sé / burtför af þínu heimili.“. Afi fullyrti að „heimili“ ættin að bera fram „heimile“, en hann var jú að vísu úr Suðursveitinni. Syðsta vígis „austurlensks framburðar“.