Þær væringar sem nú eru innan ríkisstjórnarinnar og VG skyldu þó ekki leiða til þess að Framsókn stækki en VG minnki? Ég heyrði Vigdísi Hauksdóttur bjóða Jóni Bjarnasyni og fylgismönnum hans velkomna í Framsóknarflokkinn og halda því fram að stór hluti VG fólks væri „framsóknarmenn“.
Það væri kannske heppilegast fyrir íslensk stjórnmál að hinn nýji Framsóknarflokkur Vigdísar og Ögmundararmurinn í VG sameinist í nýjum stjórnmálaflokki á vinstri vængnum. Þá gæti frjálslyndi hluti Framsóknarflokksins sem enn er þar flokksbundinn tekið þátt í stofnun nýs frjálslynds stjórnmálaflokks á miðju íslenskra stjórnmála.
Steingrímsarmurinn getur þá gengið í Samfylkinguna og upp úr þessu orðið nýtt og betra fjórflokkskerfi!
Reyndar kynni þessi draumsýn Vigdísar að stangast aðeins við þá áráttu Sigmundar Davíðs formanns Framsóknarflokksins undanfarið um að vilja Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn eins og ég benti á í síðasta pistli. Nema Jón og Ögmundur séu til í stjórn með íhaldinu!
„Ég er hýr og ég er rjóð, Jón er kominn heim“…..
Það eru nú ekki margir sem fá í hnén frammi fyrir Jóni Bjarnasyni. Vigdís hefur stundum haft lag á að koma á óvart.
Ef sú staða kæmi upp þá dreg ég það í efa að x-d myndi vilja í stjórn með vg – landsdómsatkvæðagreiðsan nánast útikokar það.
Það sem við þurfum er kosningar – landið er stjórnlaust og réttast að þjóðin fái tækifæri til að segja sína skoðun.
Sigmundur fer bara í Sjálfstæðis!
Hallur, voðalega ertu mikið fyrir að Framsókn gerist krataflokkur eða verði hækja Samfylkingarinnar.
Draumur þinn um að Framsókn verði einhver ESB-flokkur og taki upp stefnu Samfylkingarinnar, verður aldrei að veruleika.
Þú ættir eiginlega að fara með Guðbirni og Gumma Steingríms í Samfylkinguna. Þar eigið þið heima.