Árni Páll Árnason er með 28% meira fylgi meðal þjóðarinnar til að verða formaður Samfylkingarinnar en keppinautar hans. Næstur honum er hinn geðþekki Guðbjartur Hannesson og fast á hæla honum hin knáa Katrín Júlíusdóttir. Allt flott fólk! Þetta er eitt af því merkilega við niðurstöðu skoðanakönnunar MMR og Viðskiptablaðsins um hvern þjóðin vill fá sem formann Samfylkingarinnnar þegar Jóhanna Sigurðardóttir […]
Talsmaður neytenda er eins manns skrifstofa. Reyndar hefur Talsmaðurinn verið í krafti embættis síns mun meira áberandi í hagsmunamálum neytenda en 14 manna Neytendastofa. Þá er ég ekki að gera lítið úr Neytendastofu. Hún vinnur eflaust mikið og þarft verk þótt neytendur taki ekki sérstaklega eftir því. Mér hefur þótt með ólíkindum hversu miklu þetta […]
Samfylkingin hefur val. Val um að verða breið fjöldahreyfing til framtíðar eða lítill vinstriflokkur sem þess vegna getur gengið inn í flokksbrotaflokkinn VG. Átök um hvora leiðina skal fara eru hafin. Þau átök endurspeglast hjá Stefáni Ólafssyni sem reynir í Eyjupistli sínum að gera talsmann breiðfylkingarleiðarinnar tortryggilegan. Stefán vill greinilega fara vinstri leiðina. Líkt og Jóhanna Sigurðardóttir fráfarandi […]
Höftum og einangrunarstefnu fylgja völd. Pólitísk völd. Gæti það verið skýringin á því að margir stjórnmálamenn sem ættu að vita betur vilja ríghalda í íslensku krónuna sem ekki getur þrifist án óheilbrigðra gjaldeyrishafta?