Sjálfstæðisflokkurinn er patt í íslenskri pólitík eftir landsfund sinn um helgina. Samningsstaða flokksins gagnvart eina mögulega samstarfsaðila sínum – Framsóknarflokknum – er afar veik. Hörð andstaða landsfundarins gegn aðildarviðræðum að Evrópusambandinu gerir það að verkum að samstarf við Bjarta framtíð og Samfylkingu er varla inn í myndinni. Hvað þá samstarf við VG sem vil klára […]
Þær ætla að verða langlífar rangfærslurnar hjá rannsóknarnefnd Alþingis varðandi áhrifa breytinga sem gerðar voru á Íbúðalánasjóði árið 2004 og tilkomu svokallaðra 90% almennra lána sem var kosningamál Framsóknarflokksins. Reyndar urðu 90% almenn íbúðalán Íbúðalánasjóðs aldrei að veruleika á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem sjóðurinn hætti að lána 90% lán um mitt ár 2004. Nú er […]
Þór Saari virðist ekki með langt pólitískt nef. Vantrauststillaga á ríkisstjórnina í dag er vanhugsuð vitleysa. Verði vantraust samþykkt mun það styrkja núverandi stjórnarflokka verulega fyrir komandi kosningar. Almenningur veit að það er ekkert nema fíflagangur að hrekja ríkisstjórnina frá rétt fyrir boðaðar kosningar. Ríkisstjórnin getur hvort eð er ekki gert mikið meira af sér […]
Myndlíking Morgunblaðsins yfir Katrínu Thoroddsen Jakobsdóttur verðandi formanns VG er skiljanleg . Katrín er einstaklega falleg, klár og sjarmerandi kona. Kona sem eldri karlmenn vildu gjarnan hafa hjá sér sem gluggaskraut enda eru þeir af kynslóð sem vandist því að hafa konuna bak við eldavélina. Myndlíkingin er því greinilega duld útbrunnins karlmanns sem saknar þess tíma þegar hann […]
Íslenskir hrossabændur eiga nú frábært tækifæri til að grysja íslenska hrossastofninn eins og mikil þörf er á. Það er allt of mikið af bykkjum nagandi dýrmæta beitarhaga. Það hefur aldrei verið betra tækifæri til að markaðssetja íslenskt hrossakjöt í Evrópu en nú. Það er nefnilega svo einkennilegt að „hrossakjötsskandallinn“ í Findus frosnu lasagnja hefur opnað […]
Það er einfalt að „ljúga“ með meðaltölum. Á dögunum birtust tölur frá ríkinu um meðaldagvinnulaun hjúkrunarfræðinga. Tölurnar sýndu miklu mun hærri dagvinnulaun en flestir hjúkrunarfræðingar þekkja. Ástæðan er líklega einföld. Deildarstjórar og stjórnendur enn ofar í valdapýramídanum eru með miklu hærri daglaun en almennur hjúkrunarfræðingur. Þegar ríkið gefur út tölur um meðaldagvinnulaun hjúkrunarfræðinga þá eru […]
Það er glapræði að taka „danska“ húsbréfakerfið upp á Íslandi meðan við búum við gjaldeyrishöft, ónýtan gjaldmiðil og nánast gjaldþrota, yfirveðsett heimili. Því það er nánast öruggt að innleiðing „danska“ húsnæðiskerfisins mun leiða af sér háa raunvexti á húsnæðislánum líkt og tíðkuðust í íslenska húsbréfakerfinu þar sem vextir voru yfirleitt um og yfir 6% og allt […]
Lihkku beivviin! Það er þjóðhátíðardagur Sama í dag. Samar halda uppá 6. febrúar í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Rússlandi. Þeir minnast 6.febrúar 1917 þegar Samar frá öllum þessum löndum söfnuðust til Þrándheims til að halda fyrsta landsþing sitt. Landsþing þar sem þeir skilgreindu sig sem eina þjóð þvert á landamæri. Við Íslendingar gleymum stundum þessar Norðurlandaþjóð. […]
Jóhanna Sigurðardóttir er að stíga sín síðustu skref í stjórnmálum eftir langan og viðburðaríkan feril. Hvað sem fólki finnst um þá pólitík sem Jóhanna hefur staðið fyrir þá verður ekki frá henni tekið að hún hefur gefið líf sitt og sál í baráttunni fyrir hugsjónum sínum. Því Jóhanna er hugsjónamanneskja. Ég hef átt nokkur samskipti […]