Kjaftfor gutti að stíga sín fyrstu spor í pólitík. Hafði valið Framsóknarflokkinn eftir töluverða umhugsun. Ef ekki hefði verið Framsókn þá hefði það verið Alþýðuflokkurinn. Ekki Kvennaframboðið þótt guttinn hafi kosið það ágæta framboð áður en hann gekk í stjórnmálaflokk. Kjaftfori guttinn var ég. Náði skjótum frama hjá ungu Framsóknarfólki og var einn af fulltrúum […]
Fylgi Pírata í viðhorfskönnunum þessa dagana er ekki fylgi við Pírata nema að mjög takmörkuðu leyti. Fylgið er «ekki fylgi» við hinn hefðbundna fimmflokk sem kjósendur hafa endanlega gefist uppá. Það er merkilegur andskoti að sjá jafnvel reyndustu frétta- og stjórnmálaskýrendur flögra kringum Pírata eins og mý um mykjuskán. Og enn steiktara að sjá sömu […]