Orðskrípið „selfí“ fer dulítið í taugarnar á mér. Ef vilji væri fyrir hendi ætti að vera unnt að finna gott íslenskt orð yfir fyrirbærið líkt og við fundum „sími“, „þyrla“, „þota“ og svo framvegis. „Selfí“ er augnabliks sjálfsmynd af einstaklingi yfirleitt tekinn á myndavél í snjallsíma sem viðkomandi ákveður yfirleitt að dreifa á einhverjum samfélagsmiðlanna. […]