Í fréttaflutning hér á landi er orsakasamhengi sjaldnast leitt út. Þannig birtist í síðustu viku frétt með ofangreindri fyrirsögn þar sem segir:
Við erum með of margar afurðastöðvar sem selja of fáum, stórum verslunarkeðjum. Það hlýtur að flokkast sem fákeppni…
Samandregið virðist ljóst að of mikil fákeppni sé í verslun en of lítil í afurðarstöðvum.
Stærsti þátturinn sé hins vegar sá að verð á lambakjöti hafi lítið hækkað til neytandans.
Auðvitað hefur miðstýrður áætlunarbúskapur að Marxiskri fyrirmynd margsannað sig í blómlegum rekstri um víða veröld og því augljóslega ekki við ríkis-markaðsráð, ríkis-kvótakerfi eða ríkis-verðlagsráð að sakast, bara fákeppni í verslun sem heldur aftur af verðhækkunum til neytenda!