Færslur fyrir janúar, 2011

Miðvikudagur 05.01 2011 - 19:19

Átök um nýjan stjórnarsáttmála

Það hafa ekki allir áttað sig á að átök villikattanna innan VG við samflokksmenn sína í þingflokki Vinstri grænna eru ekki síst vegna þess að á næstunni verður að vinna nýjan stjórnarsáttmála. Þá skiptir ekki hvort núverandi ríkisstjórn heldur velli lítt breytt – eða hvort Framsókn gengur til liðs við ríkisstjórnarflokkana og myndar með þeim […]

Miðvikudagur 05.01 2011 - 08:31

Dagur villikattanna

Í dag er dagur villikattanna í VG.  Í dag kemur í ljós hvort villikettirnir leggja niður rófuna og leggjast malandi í faðm Steingríms J. og Jóhönnu – eða hvort villikettirnir fara á flakk. Ég óttast að villikettirnar leggi niður rófuna og lepji úr rjómaskál ríkisstjórnarinnar fram á vor.  Þá muni stjórnin springa. Á versta tíma. Það þarf nefnilega […]

Þriðjudagur 04.01 2011 - 22:22

Sjálfstæðisflokkurinn týndur

Sjálfstæðisflokkurinn virðist algerlega týndur í stjórnmálaumræðunni þessa dagana á meðan Framsókn og villikettirnir í VG eru áberandi í hinu pólitíska sviðsljósi. Það sem merkilegra er – það virðist enginn sakna Sjálfstæðisflokksins!

Þriðjudagur 04.01 2011 - 08:21

Beðið eftir VaffGé

Það er víða beðið eftir VG.  ESB armur VG, Samfylkingin, Framsókn, þjóðin. Allir bíða eftir VG. Á morgun kemur í ljós hvort villikettirnir leggja niður rófuna og leggjast malandi í faðm Steingríms J. og Jóhönnu – eða hvort villikettirnir fara á flakk. Ég spái því að villikettirnar leggi niður rófuna og lepji úr rjómaskál ríkisstjórnarinnar […]

Mánudagur 03.01 2011 - 11:23

Samfélag á villigötum

Við erum samfélag á villigötum. Viðhorfið „Allt er bannað sem ekki er sérstaklega leyft“ hefur tekið yfir. Til að fylgja eftir þessu hættulega viðhorfi er verið að setja á fót eftirlitsnefnd á eftirlitsnefnd ofan. Tjáningafrelsi er forsenda þess að við getum varið önnur réttindi okkar. Nú er verið að setja á fót ríkisrekna eftirlitsnefnd með […]

Sunnudagur 02.01 2011 - 21:30

Quis custodiet ipsos custodes?

Quis custodiet ipsos custodes?

Laugardagur 01.01 2011 - 17:57

Kjarni lýðræðisins er vilji fólksins

„Kjarni lýðræðisins er vilji fólksins. Svo einfalt er það, hvað sem líður kenningum eða visku spekinganna“ Þetta er rétt hjá forseta lýðveldisins.  Hins vegar eiga stjórnmálamenn afar erfitt með að sætta sig við þessa staðreynd. Ekki hvað síst núverandi leiðtogar ríkisstjórnarinnar. Forsetinn sagði einnig: „Þá er áríðandi að allir þeir sem kjörnir eru hafi jafnan […]

Höfundur

Hallur Magnússon
Fjögurra barna faðir "af vondu fólki" og áhugamaður um þjóðmál.

Heldur upp á eftirfarandi vísu:

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun."

Séra Baldur segir að Hallur sé: "...bæði sviphreinn og tillögugóður"!
RSS straumur: RSS straumur