Þriðjudagur 15.02.2011 - 12:08 - 3 ummæli

Skólabörn 1 – Bezti 0

Skólabörn í Reykjavík unnur mikilvægan sigur þegar Bezti flokkurinn og bakhjarl hans í borgarstjórn ákváðu að gefa eftir og hætta við boðaðan niðurskurð í kennslu í grunnskólunum.

Fram kom hjá formanni menntaráðs að þegar Bezti og bakhjarl hans í borgarstjórn fóru að skoða málið þá hafði þeim brugðið yfir því að á undanförnum misserum hafi þegar verið skorið niður í kennslunni.

Því miður er þetta einkennandi fyrir Bezta og bakhjarl hans í borgarstjórn.  Fyrst er skotið – svo er skoðað!

Hvernig væri að menn tækju upp samvinnustjórnmálin sem stunduð voru í borgarstjórn síðari hluta síðasta kjörtímabils.  Og kynni sér einnig málin og stöðuna áður en vaðið er út í vitleysuna.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • Sæll Hallur.
    Það er rétt að halda því til haga að Besti flokkurinn og bakhjarl hans, einsog þú kallar þau, hafa aðeins hætt við lítinn hluta niðurskurðarins. Þ.e. þann hluta sem veit að skerðingu kennslu.

    Áfram er fyrirhugaður samrekstur og sameining skóla, sem er það sem margir foreldrar og kennarar hafa verið hvað mest uggandi yfir. Þar ætlar meirihlutinn í borgarstjórn sér að ná fram sparnaði upp á hundruð milljóna króna.

  • Sigurður Pálsson

    Skólabrörn 1 Besti flokkurinn 1. Sýnist þetta vera sanngjarnara svona. Þeir sjá af sér og skipta um skoðun. Er það ekki gott?.

    Til Gísla Marteins.

    Hvað er að því að skoða samrekstur skóla eða sparnað á öðrum sviðum. sé ekkert að því. t.d í mínu hverfi er ca 1 km á milli skóla. Sé ekkert að því að skoða hvort hægt sé að samtvinna þá

  • Kristján Kristinsson

    Og hvað villi Gísli gera í staðinn?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og einum? Svar:

Höfundur

Hallur Magnússon
Fjögurra barna faðir "af vondu fólki" og áhugamaður um þjóðmál.

Heldur upp á eftirfarandi vísu:

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun."

Séra Baldur segir að Hallur sé: "...bæði sviphreinn og tillögugóður"!
RSS straumur: RSS straumur