Framsóknarflokkurinn verður að fara að gera upp við sig hvort hann ætlar áfram að skipa sér í sveit með frjálslyndum flokkum í Evrópu – og reyndar heiminum öllum. Framsóknarflokkurinn var um áratugaskeið virkur í samstarfi frjálslyndra flokka. Steingrímur Hermannsson var til að mynda varaforseti Liberal International – alþjóðasamtökum frjálslyndra flokka og beitt sér þar.
Framsóknarflokkurinn hefur lengst af átt afar gott samstarf við evrópska frjálslynda systurflokka sína sem starfa saman í ELDR – European Liberal Democrats. Þingmenn þeirra flokka á Evrópuþinginu skipa þriðja stærsta þingflokkinn þar – ALDE group – Alliance of Liberals and Democrats for Europe.
Framsóknarflokkurinn hefur hins vegar ekki gengið í ELDR – ennþá.
Diana Wallis varaforseti Evrópuþingsins kemur einmitt úr ALDE group. Diana var í heimsókn á Íslandi í gær og hélt fyrirlestur á opnum fundi Alþjóðastofnunar HÍ, Rannsóknarseturs um smáríki og Lagastofnunar HÍ.
Þá átti Diana Wallis góðan fund með okkur sem vinnum að undirbúningi að stofnun nýs Evrópuvettvangs.
En þótt Framsóknarflokkurinn hafi gegnum áratugina tekið þátt í samstarfi frjálsyndra flokka þá hefur lítið borið á því samstarfi undanfarið. Ekkert hefur verið unnið innan Liberal International. Fulltrúar á vegum flokksins hafa átt gott samstarf við félag sína í ELDR og ALDE – en því miður hafa ekki verið tekin afstaða til ítrekaðra tillagna flokksmanna um að Framsóknarflokkurinn skipi sér áfram í sveit frjálslyndra flokka í Evrópu og gangi í ELDR.
Framsóknarflokkurinn verður að taka afstöðu til þess hvort hann vilji vera frjálslyndur flokkur í samstarfið við aðra frjálslyndar flokka og ganga til liðs við ELDR. Tækifærið til þess er á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins um helgina.

Hallur Magnússon
Ég held að þú hafir einhverja allt aðra hugmynd um Framsóknarflokkinn eins og hann er í dag en flestir aðrir.
Framsóknarflokkur er orðinn að stórum hluta íhaldsflokkur.
Það er klárlega sóknarfæri á Íslandi í dag fyrir frjálslyndan flokk.
Frjálslyndi er ekki haldið nógu mikið á lofti. Það keppast allir við að vera eins íhaldssamir og hægt er. Það eru íhaldsmenn sem stjórna VG, það eru íhaldsmenn sem stjórna því hvert Sjálfstæðisflokkurinn fer, Sigmundur formaður Framsóknar er meira íhalds en Björn Bjarnason og Jóhanna Sig er úr sér gengið íhald og langt frá því að vera frjálslyndið uppmálað.
Það er meir að segja orðið svo sjúkt að það er öfgahópur sem hlustað er á í Samfylkingunni sem þráir ekkert annað heitara en að færa einn af grunnatvinnuvegum þjóðarinnar aftur um ca 30-40 ár.
Sæll Hallur.
Raunverulegt frjálslyndi er heldur ekki það sama og vilja ganga steinrunnu ESB apparatinu á hönd eins og þú virðist misskilja aftur og aftur og oftast kemur skýrt fram í öllum þínum málflutningi.
Framsókn á sóknarfæri núna eftir mesta niðurlægingartímabil í gjörvallri sögu flokksins.
En þau felast ekki í því að styðja ESB innlimun þjóðarinnar, heldur þvert á móti að berjast fyrir sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar á öllum sviðum og að verja lögsögu okkar og auðlyndir á jafnræðisgrundvelli samkvæmt þjóðarrétti og í öflugu samstarfi og samvinnu á alþjóðavettvangi og alþjóðastofnunum eins og SÞ og fleirum
En það gerir þjóðin eða Framsókn alls ekki með því að gefa eftir af fullveldi sínu og forræði í eigin málum til þessa yfirþjóðlega og þungglammalega ESB apparats sem stjórnað er af fámennri og spilltri Elítu klíku.
Gunnlaugur.
Þú gerir mér enn einu sinni upp skoðanir. Ég hef aldrei haldið því fram að það sé samasemmerki milli frjálslyndis og að ganga í Evrópusambandið.
Málið snýst ekki um það – heldur hvort Framsóknarflokkurinn ætli að viðhalda frjálslyndinu – sem hefur verið mikilvægur þáttur í stefnu flokksins – eða ekki.
Því miður eru ýmis merki um að frjálslyndið sé á undanhaldi.
ELDR eru Evrópusamtök frjálslyndra flokka. Hluti þeirra eru í aðildarlöndum Evrópusambandsins og aðrir ekki. Svo einfalt er það.
Það er áratuga hefð fyrir samstarfi Framsóknar við frjálslynda flokka. Þeirri hefð hefur því miður lítið verið viðhaldið að undanförnu.
Sæll Hallur!
Þú segir að það sé „áratuga hefð fyrir samstarfi Framsóknar við frjálslynda flokka“. Það er rétt, en hvers vegna sættu frjálslyndir flokkar sig við samstarf við afturhaldsseggi á Íslandi?
Frjálslyndi felur í sér að ríkið hefur ekki óhófleg afskipti af lífi fólks og rétti þess til að lifa því eins og það vill.
Á Íslandi er þessi hugsun einfaldlega ekki til.
Enda er skipulega saumað að einstaklingsfrelsinu.
Lífi fólks er m.a. stýrt með verði á nauðsynjavörum eins og matvælum, bensíni og áfengi.
Allir flokkar eru sekir um að hatast við frjáslyndi og einstaklingsfrelsi.
Enda er þetta allt sama tóbakið.
Hallur.
En er kannski ekki skýringin að flokkurinn hefur minnkað all verulega frá vlemektar tímanum þegar umburðarlyndis frjáslyndis maðurinn Steingrímur Hermannssson stýrði flokknum.
Í tíð HA fór flokkurinn svo endanlega af öllum límingum og varð eitt mesta afturhald og spillingarbæli íslenskra stjórnmála frá upphafi vega.
Ekki heyrðist múkk í þér þá þó meira en helmingur stuðningsmanna flokksins ofbiði svo að þeir á endanum yfirgáfu flokkinn.
Þú sast þarna enn eins og ekkert hefði í skorist.
En nú þegar menn eru að byggja upp brunarústirnar þá allt í einu ferð þú og röflar eitthvað um hvað orðið hafi að frjálslyndinu.
Án þess að þetta sé persónulegt Hallur því að mér þykir oft ýmislegt gott frá þér koma að þá er þetta samt ekki trúverðugt útspil hjá þér, eftir að hafa setið yfir öllu bullinu og ruglinu árum saman og ekki hreyft litla fingur.
Hvað meinarðu með frjálslyndi? Er það „classical liberal“ eins og Karl hér að ofan virðist vera að tala um eða „liberal“ eins og vinstrimenn eru jafnan kallaðir í Bandaríkjunum í dag? Íslendingar virðast ævinlega rugla þessu saman. Frjálslyndisstefna snerist upphaflega um einstaklingsfrelsi og takmarkað ríkisvald, en hefur þróast yfir í stöðugt víðtækari réttindagæslu sem krefst sífellt stækkandi ríkisvalds. Sem er í raun andstæða þess sem frjálslyndir hugsuðir eins og Locke hugsuðu sér upphaflega.
Gunnlaugur.
Enn ertu að gera mér upp hluti.
Því fer fjarri að ég hafi: „…setið yfir öllu bullinu og ruglinu árum saman og ekki hreyft litla fingur.“.
Enn þá meira fjarri lagi að: “ Ekki heyrðist múkk í þér þá …“.
Greinilegt að þú hefur ekki verið á miðstjórnarfundum og flokksþingum Framsóknarflokknum gegnum tíðina.
Ég hef alla tíð sagt mína meiningu – og ekki veigrað mér við að gagnrýna forystu flokksins – allt frá tímum Steingríms Hermannssonar.
Líklega hef ég síst gagnrýnt núverandi formanna Framsókanrflokksins af öllu formönnum flokksins fram að þessu.