Velkomin aftur til starfa Katrín Thoroddsen Jakobsdóttir. Og hafðu þökk fyrir fyrsta embættisverk þitt eftir barnsburðarleyfi – að stöðva menningarelítufasisma húsfriðunarnefndar. Það sér hver heilvita maður að Þorláksbúð er ekki óafturkræf framkvæmd. Enda sést ekki tangur né tetur af upphaflegri Þorláksbúð í Skálholti!
Því var gönuhlaup húsfriðunarnefndar algerlega óþarft og hreinlega skaðlegt á þessum tímapunkti.
Þú sýndir meðalhóf í stjórnsýslu með ákvörðun þinni. Vonandi verður það til þess að félagar þínir í ríkisstjórn taki upp meðalhófið í sinni stjórnsýslu.
Hófst ekki gönuhlaupið, þegar hafist var handa við kofann?
Staðsetningin á tilgátukofanum er alveg fáránleg.
Þarf nú ekki nema þokkalegan smekk til að sjá það.
Pétur að staðsetningin svo nálægt Skálholtskirkju er fáránleg.
Framtakið er hins vegar ágætt!
Það má kannski selja inn? En mér sýnist hleðslan vera skökk. En hvað eru 30 millur milli vina. Fara þær í 60?
Tilgátukrkjan er stertimennska og fjáraustur,sem ledir á Ríkinu þegar upp er staðið eins og reyndar“´Hátæknisjúkrahusið“ þó það sé þessu óskylt.
Dettur annars nokkrum í hug að kyrkjubyggingin kosti aðeins háifan milljað eða álíka og fimm einbýlishús ?!!!
Tek undir með Pétri. Gönuhlaupið er framkvæmdaraðilanna sem hófust handa án byggingarleyfis.
Ef þeir hefðu farið að lögum og sótt fyrst um byggingarleyfi hefði umsögn Húsfriðunarnefndar legið fyrir áður en nokkru hefði verið til kostað.
Hvers vegna gátu þessir athafnamenn ekki bara farið að lögum eins og aðrir?