Menntamálaráðuneytið vinnur gegn íslenskri menningu. Kannske er það vegna þess að um er að ræða íslenska þjóðmenningu en ekki snobbmenning 101 Reykjavík. Göngur og réttir eru ekki einungis mikilvægar fyrir íslenskt atvinnulíf á landsbyggðinni. Göngur og réttir með þeim hefðum sem þeim fylgja eru mikilvæg menningarverðmæti íslensku þjóðarinnar. Það er mikilvægt að íslensk æska hafi […]
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur að líkindum stimplað sig út úr baráttunni um að verða næsti formaður Samfylkingarinnar með dýrustu launahækkun ársins. Launahækkun forstjóra LSH sem slík skiptir ekki sköpum fyrir fjárhag ríkisspítalana. En afleiðingar launahækkunarinnar munu meðal annars verða verulegt fjárhagslegt tjón í rekstri LSH . Starfsfólk LSH hefur á undanförnum misserum af miklum faglegum metnaði staðið […]
Það er eðlilegt að ríkisstjórnin vilji þakka sér árangurinn í þeim atvinnugreinum þar sem uppgangur hefur verið og tekjur í íslenskum krónum aukist. En staðreyndin er sú að hrun íslensku krónunnar er fyrst og fremst ástæða tekjuaukningarinnar – ekki sértækar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þá er ég ekki að gera lítið úr aukinni endurgreiðslu kostnaðar vegna erlendrar […]
Þótt stjórnvöld hafi ekki gert neitt til að skapa búseturéttarforminu og húsnæðissamvinnufélögunum heilbrigðan rekstrargrundvöll þá hefur húsnæðissamvinnufélagið Búseti nú tekið mikilvægt skref í uppbyggingu húsnæðismarkaðarins með stórverkefni við miðbæ Reykjavíkur. Því ber að fagna á alþjóðaári samvinnufélaga. Búseti berst gegn straumnum með hag almennings í brjósti. Núverandi húsnæðislöggjöf er beinlínis andstæð húsnæðissamvinnufélögum og búseturéttarforminu. Túlkun […]
Strákagengið í þingflokki Sjálfstæðisflokksins óttast greinilega Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem gæti ef hún vildi rúllað upp prófkjöri í Reykjavík og tekið fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi Alþingiskosningar. Það er hin rökrétta skýring á því að þingflokkurinn kasti duglegri konu sem þingflokksformanni og geri umdeildan fyrrum bankastrák og hrunliða að formanni þingflokks. Það virðist […]
Rekstrarkostnaður Íbúðalánasjóðs hækkaði um 96% fyrstu tvö árin eftir að Guðmundur Bjarnason lét af störfum sem framkvæmdastjóri sjóðsins. Rekstrarkostnaður Íbúðalánasjóðs hækkaði um 41% á 12 mánuðum frá því 30. júní í fyrra til 30. júní í ár og mun hækka enn frekar síðari hluta ársins í ár ef marka má skýrslu stjórnar ÍLS. Þessi gífurlega […]
Reykjavík er margþætt borg og skemmtileg. Reykjavík er meðal annars háskólabær. Reykjavík hefur í grunninn allt til þess að geta verið fyrirmyndar háskólabær. En hvað þarf til svo að háskólabær sé til fyrirmyndar? Það er ýmislegt. Meðal annars góðar almenningssamgöngur sem eru samkeppnisfærar við einkabílinn í kostnaði. Nægt leiguhúsnæði á eðlilegu leiguverði. Leikskólapláss fyrir börn […]
Ég er afar stoltur af þeim vinum mínum og ættingjum sem misst hafa fótanna gagnvart Bakkusi en hafa staðið upp, rifið af sér fjötrana og halda nú áfram betra lífi – einn dag í einu. Ég finn til með þeim vinum mínum og ættingjum sem misst hafa fótanna gagnvart Bakkusi og ekki hafa náð að snúa […]
Sjóvá, Saga Capital, VBS og Byr. Gleymdi ég einhverju í þessari upptalningu pólitískra hrakfara eftirhrunsáranna?
Norska þjóðin gaf heiminum fordæmi um það hvernig unnt er að sigrast á illsku, kynþáttahatri og ofbeldi með samhyggð, kærleika og staðfestu eftir voðaverk Breiviks í Úteyju og í Osló. Það var norska þjóðin sem sigraði illskuna og aðför að lýðræðislegu samfélagi með því að bregðast ekki við með hatri heldur draga fram ástúð í garð […]