Hin ónýta íslenska króna er í dauðateygjunum enda lifir hún vart af afnám verðtryggingarinnar. Sífellt fleiri íslenskir stjórnmálaleiðtogar vilja taka upp alvöru gjaldmiðil. Sigmundur Davíð vill kanadískan dollar. Jóhanna Sigurðardóttir vill taka upp evru. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær við fáum alvöru gjaldmiðil.
Franek Rowzadowski ræður meira um Ísland og íslenskt efnahagslíf en Steingrímur J. Hvað sem Þistilfirðingurinn reynir að segja. Íslendingar vita ekkert hver Franek Rowzadowski er. Eða hvað hann er að gera! En íslenskur almenningur á kröfu til þess að vita með hverjum Franek Rowzadowski fastafulltrúi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins „manglar“ – því þessi einn valdamesti og ósýnilegasti […]
„Þegar núverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins var ráðinn árið 2005 lagði ég til að útlendingur yrði ráðinn forstjóri og færði fyrir þau skýr rök. Stjórnvöld hefðu betur farið að mínum tillögum þá. Nú verður nýr forstjóri Fjármálaeftirltisins ráðinn. Það á að vera útlendingur.“ Þetta bloggaði ég 25. janúar 2009. Enn einu sinni kemur í ljós að afar […]
Trúverðugleiki Gunnars Andersens fauk endanlega út í veður og vind í dag þegar lögmaður hans breytti efnislegum ágreiningi yfir í „formtæknilegan ríkisstarfsmanna“ ágreining. Í stað þess að taka slaginn um trúverðugleika og það sem er satt og rétt – þá er tekin vígstaða um „réttindi ríkisstarfsmanns“ og hvort lagatæknilega sé rétt staðið að því að koma […]
Það var dálítill hroki í Stefáni Jóni Hafstein hér í eina tíð. Allavega var hann dálítið góður með sig. Hafði reyndar að sumu leiti efni á því. Vel gefinn, myndarlegur maður sem auðvelt á með að tjá sig við hvern sem er. Ljóst að það rúllar enginn yfir Stefán Jón. En Stefán Jón hefur breyst. […]
Hvernig veit Álfheiður að enginn þingmaður hafi hringt í mótmælendur á Austurvelli og leiðbeint þeim í aðför að lögreglu og Alþingishúsi?
Eigum við ekki að banna lestur Nýja testamentisins í Ríkisútvarpinu? Það er nefnilega unnt að túlka ritningargreinar þar sem gyðingahatur. … annað en umburðarlyndið í garð annarra en „guðs útvöldu þjóð“ í Tenakh! Að ég tali ekki um Mishna og Talmúd!
Fyrirtæki í Reykjavík reynir nú að hafa minn gamla flokk Framsóknarflokkinn að féþúfu! Fyrirtækið rukkaði Framsóknarflokkinn um tvöfalt hærri fjárhæð en um var samið fyrir þjónustu þess í aðdraganda kosninganna 2009. Fyrirtækið hefur ekki getað lagt fram nein gögn né neinar sannanir fyrir því að fjárkrafa þess eigi við rök að styðja. Þvert á móti […]
Ég veit ekki hvort ég á að hlægja eða gráta nú þegar forsvarsmenn fjármálafyrirtækja og stjórnarþingmenn leggja til að ágreiningur um skuldavandann verði leystur í gerðardómi. Ég man ekki betur en sömu aðiljar hafi nánast farið af hjörunum þegar Gísli Tryggvason Talsmaður neytenda lagði árið 2009 fram tillögur um einmitt slíka gerðardómsleið! Menn hefðu betur farið […]
Það er hjákátlegt að sjá marga þá sem réðust af miklu offorsi á starfsheiður bæjarritarans í Kópavogi þegar hann var ráðinn yfirmaður Bankasýslu ríkisins, þar sem hann var metinn hæfasti umsækjandinn, orga nú eins og stungnir grísir yfir því að forstjóri Fjármálaeftirlitsins sé í vandræðum vegna vafasamra starfa sinna fyrir aflandsfélög Landsbankans.