Þriðjudagur 17.11.2015 - 08:42 - FB ummæli ()

Illugi vill skattahækkun

Illugi Gunnarson skrifar kveðjugrein í Morgunblaðið í dag þar sem nokkur atriði standa upp úr:

  1. Illugi berst fyrir skattahækkun á heimilin í landinu með hækkun á útvarpsgjaldi um kr. 1.400 frá því sem ákveðið var í fjárlagafrumvarpi!
  2. Illugi telur að ný tækni sé óumflýjanleg en telur jafnframt að starfsmenn Ríkisútvarpsins ,,eiga hrós skilið“ en lætur ónefnt hvort val á 4.000 milljóna loftnetsgreiðukerfi og tæknileg stefnumörkun sé hluti af því hrósi.
  3. Illugi telur að núverandi útvarpsstjóri hafi staðið sig mun betur í starfi heldur en alnafni útvarpsstjórans sem ekkert skildi í ársreikningum eða stefnumörkun stofnunarinnar á meðan hann sat í stjórn RÚV.
  4. Illugi gefur ekkert fyrir ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um að leggja niður eða selja RÚV.
,,..árangur stjórnenda RÚV við rekstrarvanda.."

,,..árangur stjórnenda RÚV við rekstrarvanda..“

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Arnar Sigurðsson
Talsmaður einstaklingsfrelsis
RSS straumur: RSS straumur