Laugardagur 16.04.2016 - 12:49 - FB ummæli ()

Píratar ,,Eitthvað annað“

Kjörþokki Pírata byggir á því að þeir eru svona ,,öðruvísi“ stjórnmálamenn en kjósendur eru búnir að fá upp í háls af stjórnmálamönnum sem segja ekki það sem þeir meina og meina ekki það sem þeir segja. Engum dettur í í hug að Píratar séu bara nýjar umbúðir á gamaldags vinstri stjórnmál. Þess í stað eru Píratar ný kynslóð stjórnmálamanna með nýja stjórnarskrá öfugt við gamla draslið með eignarrétt og höfundarrétt og svoleiðis bull, eða svo vitnað sé í Fréttatímann ,,skilin milli hægri og vinstri eru nánast ógreinileg”.

Eins og kunnugt er, þykir Pírötum höfundarréttur hið mesta böl sem í raun ætti að hugnast öðrum vinstri mönnum vel því sá réttur er auðvitað eitt form af eignarrétti sem er jú eitur í beinum vinstri manna:

5.1 Takmörkun á frelsi fólks til að safna og miðla upplýsingum er óásættanleg

Núverandi hugmyndum um höfundarrétt væri ekki hægt að framfylgja á internetinu nema með því að vega gróflega að réttindum borgaranna. Það er ólíðandi að fjárhagslegir eiginhagsmunir trompi borgararéttindi og frjáls samskipti,

Píratar álykta að: Frjáls dreifing (skuli vera) á efni sem er ekki í fjárhagsskyni.

Til að skilja betur hvað það er sem Píratar meina má nefna að þegar þessi pistill er skrifaður er greinarhöfundi ókleyft að dreifa pistlinum á Facebook þar sem reikningurinn er nú læstur í 3 daga í refsingarskyni vegna höfundarréttarbrota gagnvart Pírötum. Afbrotið fólst þó ekki í því að ég hafi hakkað mig inn í tölvu Birgittu og dreift hennar tölvupóstum að hætti Wikileaks heldur póstaði ég hlekk á mynd (sem ég vil kalla ,,íslenskur kjörþokki“) af Flickr ljósmyndasíðu sem þó er opin öllum.

Sú uppákoma minnir reyndar á að Birgitta, vitorðsmaður Wikileaks taldi auðvitað bara sjálfsagt að gögn, sem m.a. leiddu til þess að fjöldi vestrænna samstarfsmanna í arabaríkjunum var pyntaður til dauða af ISIS og Al qaeda, væru birt. Hinsvegar kom ekki til greina að verða við ósk Bandaríkjamanna um afrit af hennar eigin gögnum.
Lítið hefur svo verið rætt um þá ætlun margra Pírata að veita eftirlýstasta manni veraldar, Edward Snowden pólitískt hæli á Íslandi rétt eins og slíkt hafi engar afleiðingar fyrir almenning á Íslandi gagnvart voldugasta ríki heims.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Arnar Sigurðsson
Talsmaður einstaklingsfrelsis
RSS straumur: RSS straumur