Ömurleg niðurstaða í nýrri skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um yfirtöku Strætó á ferðaþjónustu fatlaðs fólks kemur því miður ekki á óvart. Í skýrslunni kemur fram samkvæmt fjölmiðlum að stjórnun breytinganna á ferðaþjónustu fatlaðs fólks eftir að hin raunverulega innleiðing átti að hefjast hafi misfarist verulega. Yfirumsjón með breytingunum var ekki á hendi eins ákveðins aðila sem samræmdi alla fleti breytinganna, bæði þá sem sneru að notendum ferðaþjónustunnar, starfsmönnum ferðaþjónustu fatlaðs fólks, starfsmönnum velferðarsviða sveitarfélaganna og starfsemi Strætó bs. Þá kemur fram hörð gagnrýni á að starfsfólki með reynslu skuli hafa verið sagt upp og að byrjað hafi verið um áramót í stað þess að byrja að vori eða sumri til.
Við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðum til 20. janúar í borgarstjórn að Innri endurskoðun yrði falið að gera úttekt á öllu málinu.
Tillaga Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn 20. janúar
Mikilvægt er að læra af þeim mistökum sem gerð hafa verið með breytingum á ferðaþjónustu fatlaðra og greina sem flesta þætti þess máls. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar er falið að leggja mat á útboðsferli og skilmála vegna útboðs fyrir ferðaþjónustu fatlaðra. Útboðið verði skoðað í heild sinni. Lagt verði til dæmis mat á hvort tími sem gefinn var til fjárfestingar hafi verið fullnægjandi, reynsla bílstjóra og annars starfsfólks hafi verið nægilega hátt metin og hvort gefinn hafi verið nægilegur tími til þjálfunar þess. Þá verði skoðað hvort svigrúm Strætó bs. við mat á þátttakendum í útboðinu hafi verið nægilegt.
Rita ummæli
Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.