Það geta flestir verið sammála um að umhverfishryðjuverk hafi verið framið við Urriðafoss. Annars vegar þeir sem telja að umhverfisráðherra hafi framið hryðjuverk gagnvart íslensku atvinnulífi og efnahagslífi á viðkvæmasta tíma með því að á ólögmætan hátt neita staðfestingu skipulags um Urriðafossvirkjun megi kalla umhverfishryðjuverk. Hins vegar þeir sem telja að staðfesting dómskerfisins á að umhverfisráðherra […]
Hafa menn gleymt því að það var Sjálfstæðisflokkurinn sem ásamt Samfylkingunni skrifaði upp á hrunvíxilinn mikla sem var undanfari IceSave klúðursins? VG kom síðar að hrunvíxlinum sem ábekingur. Formaður Sjálfstæðisflokksins slær sér nú upp á því að sýna „kalt hagsmunamat“ með því að samþykkja nýjasta IceSave samkomulagið – sem vissulega er miklu betra en hin […]
Eru menn búnir að gleyma að Byggingarsjóður Verkamanna var gjaldþrota um rúma 30 milljarða við upphaf Íbúðalánasjóðs. Eru menn búnir að gleyma að ein ástæða niðurlagningar Húsnæðisstofnunar og stofnun Íbúðalánasjóðs var vegna þessa gjaldþrots?
Er Bezti flokkurinn Bezta strákaklíka í heimi? Það er ýmislegt sem bendir til þess. Bezta strákaklíkan setti Bezta vin sinn sem stjórnarformann í Orkuveitu Reykjavíkur. Þar hafa flottir strákaklíkustrákar af allra flokka gerðum átt sinn bezta heimavöll undanfarin ár – en þeir fölna í samanburði við núverandi Bezta stjórnarformann… … og Bezta tímabundna strákaklíkustrákinn í […]
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra stóðst prófið og sýnir hugrekki með því að birta neysluviðmið. Þá stóð hann sig afar vel í fjölmiðlum í kjölfarið. Þá er framsetning neysluviðmiðanna á vef velferðarráðuneytisins til mikillar fyrirmyndar. Nú er stóra spurningin hvort ríkisstjórnin muni standast prófið, því þótt formaður Öryrkjabandalagið hafi andað með nefinu og verið málefnalegur í athugasemdum sínum í gær – […]
Við eigum að stórhækka laun grunnskólakennara. Við eigum líka að fækka þeim. Samhliða eigum við að lengja skólaárið, lengja skilgreindan skóladag og lengja viðveruskyldu kennara í skólanum. Þá eigum við einnig að lengja nám grunnskólakennara úr 3 námsárum í 5 námsár. Þar af á 1 námsár að vera alfarið unnið í grunnskólunum – 6 mánuðir […]
Það eru sterk rök sem mæla með því að samningur um IceSave verði borinn undir þjóðaratkvæði. Þjóðin felldi fyrri IceSave samning í þjóðaratkvæðagreiðslu – þeirri fyrstu um slíkt mál. Þjóðin á því að klára málið. Þótt fyrirliggjandi samningur yrði samþykktur á Alþingi með 63 atkvæðum – þá eru samt sterk rök fyrir því að samningurinn verði lagður […]
Mistök eru mikilvæg. Mistök eru til að læra af þeim. En þá verða menn að læra af þeim. Það er allt of algengt meðal Íslendinga að viðurkenna ekki mistök. Ennþá algengara að Íslendingar læri ekki af þeim. Ég áskil mér allan rétt á að gera mistök. Á að baki mörg mistök. Reyni að læra af […]
Bjarni Benediktsson bjargaði að líkindum Sjálfstæðisflokknum sem alvöru afli í íslenskum stjórnmálum með því að samþykkja IceSave frumvarpið. Mögulega bjargaði hann einnig sínu eigin skinni. Afleiðingar ákvörðunnar Bjarna Ben er sú að í stað þess að frjálslyndi hluti Sjálfstæðisflokksins klofnaði frá flokknum í átt til frjálslyndra Framsóknarmanna, frjálslyndra Samfylkingarmanna og frjálslyndra óflokksbundinn – þá klofnar […]
Er Jón bakari Gnarr – lesist borgarstjóri – stundum hengdur fyrir smið? Borgarstjóranefnan hefur undanfarið sætt mikilli gagnrýni vegna tveggja mála. Ruslatunnumálsins og tónlistaskólamálsins. Tónlistarmenn baula á hann eins og beljurnar á Bítlana fyrir að skera gróflega niður fjárframlög til tónlistarskólanna. Æfir ættingjar farlama gamalmenna sem fara sér að voða við að koma ruslatunnunum sínum að 15 metra fjarlægð […]