Miðvikudagur 21.11.2012 - 17:09 - 5 ummæli

Frestunarárátta Framsóknar

Forysta Framsóknar í Reykjavík virðist haldin frestunaráráttu. Þegar stillt var upp lista fyrir síðustu Alþingiskosningar náðist ekki strax meirihluti í uppstillinganefnd til að stilla upp Vigdísi Hauksdóttur upp í 1. sæti. Því var kjördæmisþingi sem hafði það hlutverk að staðfesta framboðslista frestað um viku. Á þeirri viku náðist meirihluti fyrir uppstillingu Vigdísar í uppstillingarnefnd – 3 gegn 2.  Tillaga uppstillingarnefndar var síkðan staðfest með 1 atkvæðis mun á kjördæmisþinginu og hin dugmikla baráttukona komst á þing þar sem hún hefur mikið látið til sín taka.

Nú hefur forysta Framsóknar í Reykjavík aftur frestað kjördæmisþingi um viku þar sem ekki hefur náðst meirihluti í uppstillinganefnd fyrir uppstillingu.

Það verður spennandi að sjá niðurstöðuna …

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

  • Smári Ragnars

    Spurningin er þessi: Þarf þjóðin á Vigdísi Hauksdóttur að halda?
    Vigdís er, samkvæmt því sem eg hlera, verri en Hjálmar Árnason, en
    samt skárri en Sigmundur Davíð, sem flúinn er norður í örvæntingarfullri
    tilraun til að bjarga „four more years“ fyrir sjálfan sig.
    Gunnlaugur pabbi var nú ekki gæfulegur ef út í það er farið.
    En, endilega kjósum Framsóknarflokkinn! Það gæti alltaf orðið það kraftaverk að Frammarar færu að hugsa um almannaheill
    framyfir eginhagsmuni………Djók!

  • Jón Ingi

    Mikið til sín taka…ok.. kannski svolítið spurning um magn eða gæði, eða magn og gæði ?

  • Leifur A. Benediktsson

    Dugmikil Dugmikil baráttukona segir þú Hallur! Fyrir hverju,og fyrir hvað setendur Vigdís Hauksdóttir?

    Kv.

  • Leifur A. Benediktsson

    Dugmikil baráttukona,á þetta að vera Hallur! Og,,stendur“ Vigdís Hauksdóttir?

    Kv. L. Ben.

  • kristinn geir st. briem

    mér fimst gott að það getti verið erfit að stilla upp lista aðalmálið er að men fari ekki í fílu þegar þeir tapa gott hjá björgvin g sigurðssini

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og einum? Svar:

Höfundur

Hallur Magnússon
Fjögurra barna faðir "af vondu fólki" og áhugamaður um þjóðmál.

Heldur upp á eftirfarandi vísu:

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun."

Séra Baldur segir að Hallur sé: "...bæði sviphreinn og tillögugóður"!
RSS straumur: RSS straumur