Það hefur lengi verið klofningur í Samfylkingunni þótt sá klofningur sé fyrst að komast upp á hið opinbera yfirborð þessar vikurnar. Það er því hlálegt þegar Jóhanna Sigurðardóttir segir í ræðu yfir klofinni flokkstjórn: „Látum ekki íhaldið reka fleyg í okkar raðir.“! Það þarf ekki íhaldið til. Samfylkingin klofnaði hjálparlaust. Eins og allir aðrir stjórnmálaflokkar. […]
Króatar eru afar stoltir og þjóðernissinnaðir. Króatar náðu langþráðu fullveldi sínu fyrir örfáum árum eftir blóðug átök við nágrannaþjóð sína eftir að hafa verið hluti ríkjasambands lungann úr 20. öldinni. Króatar eru því afar meðvitaðir um fullveldi sitt. Það kom því ekki á óvart að í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Króata að Evrópusambandinu væri mest […]
Þjóðin þarf Ástu Ragnheiði forseta Alþingis burt. Með allt sitt lið. Hina 62 alþingismennina. Það er fullreynt að þetta lið ræður ekki við verkefnið. Við þurfum nýtt Alþingi. Kosið persónukosningu.
Sú upplausn og tilfinningahiti sem birtist meðal Alþingismanna og ýmissa flokksfélaga kring um Geirsmálið hefur ekki nema að litlu leiti eitthvað að gera með tillögu formanns Sjálfstæðisflokksins um að draga skuli ákæru á hendur Geir Haarde fyrir Landsdómi til baka. Upplausnin og tilfinningahitinn ristir miklu dýpra og er birtingarform þess hruns sem óhjákvæmileg bíður hefðbundins […]
Norski bankinn minn DNB vill kaupa Íslandsbanka ef marka má fréttir. Norðmenn hafa reyndar afar góða reynslu af forvera Íslandsbanka – Glitni – en í panik dauðans var Norðmönnum gefinn Glitnir í Noregi á 10% – 15% af raunvirði bankans strax eftir hrun. Eitt af mörgum afglöpum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í hrunstjórninni. Það er gott ef DNB kaupir Íslandsbanka. Slær […]
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ er hræsnari. Gylfi Arnbjörnsson gerir gróflega upp á milli fólks á grundvelli pólitíkur. Ójafnaðarmennska Gylfa Arnbjörnssonar gerir hann óhæfan sem einn helsta leiðtoga alþýðu landsins. Vigdís Hauksdóttir starfaði sem lögfræðingur hjá ASÍ. Áður en Vigdís ákvað að gefa kost á sér í 1.sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík suður fyrir síðustu Alþingiskosningar hringdi hún […]
Sannleiksnefnd um hrunið og aðdraganda þess er það sem við Íslendingar þurfum. Sannleiksnefnd sem starfar fyrir opnum tjöldum. Sannleiksnefnd þar sem markmiðið er að draga fram þau mistök sem við gerðum fyrir hrun, í hruninu og í kjölfar hrunsins. Það er eina leiðin til þess að við getum lært af því. Það á ekki að […]
Það kætti mig verulega þegar Dalabóndinn Ásmundur Daði hvatt til „málefnalegrar umræðu“ um skýrslu norsku ríkisstjórnarinnar sem staðfestir það sem lengi hefur verið ljóst – að EES samningurinn hafði í för með sér fullveldisframsal og lýðræðishalla sem einungis er unnt að leiðrétta með inngöngu í ESB eða úrsögn úr EES. Ég man yfir höfuð ekki eftir […]
Það skyldi þó ekki enda með því að við sjáum sjálfstætt Skotland sem taki upp evru í kjölfar aðskilnaðar frá Englandi og þétta samvinnu Íslendinga og Skota innan Evrópusambandsins?
Lækkun vaxta Íbúðalánasjóðs ætti að velgja loppinn fasteignamarkað svo fremi sem Íbúðalánasjóður veiti eðlilega lánafyrirgreiðslu. Sem starfsmenn sjóðsins eru ekki alltaf reiðubúnir að gera varðandi lán til leiguíbúða. Reyndar er of lágt hámarkslán almennra íbúðalána sjóðsins vandamál. Hámarkið þarf að hækka. Staða efnahagsmála er þannig að slík hækkun er til bóta frekar en hitt. Annað vandamál á markaðnum er yfirveðsetning fasteigna. […]