Þriðjudagur 17.01.2012 - 11:17 - 1 ummæli

Velgir vaxtalækkun ÍLS markaðinn?

Lækkun vaxta Íbúðalánasjóðs ætti að velgja loppinn fasteignamarkað svo fremi sem Íbúðalánasjóður veiti eðlilega lánafyrirgreiðslu. Sem starfsmenn sjóðsins eru ekki alltaf reiðubúnir að gera varðandi lán til leiguíbúða.

Reyndar er of  lágt hámarkslán almennra íbúðalána sjóðsins vandamál. Hámarkið þarf að hækka. Staða efnahagsmála er þannig að slík hækkun er til bóta frekar en hitt.

Annað vandamál á markaðnum er yfirveðsetning fasteigna. Svokölluð 110% leið – sem er alls endin 110% nema í undantekningartilfellum – gerir það að verkum að eignir seljast ekki beinni sölu. Þeir sem hafa fegið 100% „leiðréttingu“ hafa ekki 10% í eigið fé til að greiða niður lánið svo nýr eigandi geti yfirtekið það.

Eina leiðin er að minnka við sig í makaskiptum.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (1)

  • Þorsteinn Úlfar Björnsson

    Er’etta nokkuð vandamál í hjónabandinu hjá þér Hallur, þessi endalausu makaskipti? Ef svo er verðuru eiginlega að fara í meðferð við því hjá Baggalúti.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og sjö? Svar:

Höfundur

Hallur Magnússon
Fjögurra barna faðir "af vondu fólki" og áhugamaður um þjóðmál.

Heldur upp á eftirfarandi vísu:

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun."

Séra Baldur segir að Hallur sé: "...bæði sviphreinn og tillögugóður"!
RSS straumur: RSS straumur