Erum við að horfa upp á „raðmorðatilraun“ á landsbyggðinni í boði stjórnvalda? Það mætti halda það. Ég játa að ég er að ganga yfir strikið til að beina athygli að grafalvarlegu máli – en tilgangurinn helgar meðalið. Því það er verið að hætta mannslífum á landsbyggðinni! Það mætti ætla að ríkisstjórn Íslands telji að mannslífin […]
Gerði samanburðarrannsókn á sviðum í gærkvöldi. Vopnafjarðarsviðin ERU betri en KS sviðin. Ekkert að skagfirsku sviðunum samt. Sviðasultan heppnaðist fínt – vinur minn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er velkominn að kíkja við í Rauðagerðinu og fá sér flís af sviðasultu – blandaðri sviðum frá Vopnafirði og Skagafirði! Íslenskari verður maturinn ekki! Í enskri þýðingu Google Chrome […]
Ég þekki nú þennan „Jón Bjarnason“ ekkert. Menn tala um hann eins og hann sé eini Jóninn. Ég held að þeir séu nú allmargir til!!
Ég er sammála flokksráði VG um að umsýsla auðlinda Íslands verði innan umhverfisráðuneytisins. Ég hef reyndar haldið því fram í líklega 15 ár að umhverfisráðuneytið eigi að fara með úthlutun afnota af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar hverju nafni sem þær nefnast. Þá skipti ekki máli hvort um er að ræða fiskinn í sjónum, fallvötnin, heita vatnið […]
Vélrænn dynur frá umferðinni á Miklubraut dró ekki úr ánægjunni á götuhátíð Rauðgerðinga sem haldin var á rólónum í Rauðagerði í gær. En dynurinn – sem reyndar var með mildasta móti þar sem umferð um Miklubraut er frekar í lágmarki á laugardagseftirmiðdögum – var þó nægur til þess að nær allir götuhátíðargestirnir skrifuðu undir áskorun […]
Besta götuhátíð Rauðagerðis hingað til verður haldin á leikvellinum í Rauðagerði á morgun laugardag. Götuhátíðin verður pottþétt sú besta fram að þessu þar sem hún verður sú fyrsta sem haldinn er í Rauðagerði. Nokkrir íbúar í götunni hafa á undanförnum árum rætt um að halda slíka götuhátíð en ekki orðið af því frekar en nú. Þetta […]
Þótt ég hafi sagt mig úr Framsóknarflokknum á fullveldisdaginn 1. desember 2010 eftir rúmlega aldarfjóðrungs starf þá þykir mér vænt um gamla flokkinn minn. Þótt Framsókn hafi yfirgefið stefnu frjálslyndis, umburðarlyndis og uppbyggjandi umræðu sem ekki hvað síst einkenndi tímabil Eysteins Jónssonar og Steingríms Hermannssonar – þá er í flokknum fjöldi frábærs fólks sem ég starfaði […]
Ég styð Guðmund Steingrímsson alþingismann í viðleitni hans í að stofna frjálslyndan, umburðarlyndan, alþjóðlegasinnaðan miðjuflokk. Framsóknarflokkurinn er ekkert af þessu í dag. Því miður. Hundruð Framsóknarmanna hafa átt afar erfitt undanfarna mánuði vegna þeirrar vegferðar sem hluti forystu flokksins hefur tekið og þá óbilgirni sem einkennt hefur málflutning sumra stjórnlyndra þingmanna Framsóknarflokksins. Tugir þeirra hafa […]
Þetta var Bezta minningarnóttin! Hinn lofandi stjórnmálamaður Einar Örn lofaði litlum skemmtilegum „hátíðum“ – og stóð við það! Takk fyrir okkur.
Framsóknarflokkurinn er að springa í loft upp. Nýliðarnir úr „Indefence“ náðu flokknum í „coup d’état“ á flokksþingi þar sem ályktað var um afgerandi stefnu í Evrópumálum sem þeir hunsuðu – með því að ná saman við harðan flokkskima sem í raun og veru urðu málefnalega undir á því sama flokksþingi. Nýliðarnir voru úlfar í sauðsgæru […]