Því miður falla flest mál í skuggann af Icesave og skyldum málum. Það er samt verið að vinna í fjöldamörgum málum þó þau fái eðlilega ekki sömu athygli og vandræðamálin sem við erum að fást við hér á landi. Það sem kemur hér á eftir er úr ræðu sem ég flutti á Ísafirði á fundi […]
Ég hef af og til spurt fólk sem tengist fyrningarflokkunum hver útfærslan verði á fyrningarleiðinni. Þ.e. hvað tekur við þegar búið verður að fyrna aflaheimildirnar. Flestir sem tilheyra fyrningarflokkunum segja reyndar við mig að þeir séu ekki ,,sérstakir áhugamenn um þessa fyrningu“ eins og margir orða það. En jafnframt hafa sumir sagt að það þýði […]
Haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða, Coastal and Marine Management at the University Centre of the Westfjords. Nei þetta er ekki þátturinn Silfur Egils ótextaður á nokkrum tungumálum. Hér er ég að skrifa um stórmerkilega starfsemi Háskólaseturs Vestfjarða sem á nokkrum árum hefur sannað mikilvægi sitt undir styrkri stjórn Peters Weiss. Ég er virkilega stoltur af því […]
http://bb.is/Pages/26?NewsID=143263 Ríkisstjórn Íslands hefur boðað að svona sægreifa skuli afskrifa. Aðferðin er kölluð fyrningarleið og gengur út á að taka veiðiheimildar af útgerðarmönnum um 5% á ári þar til þær eru að fullu afskrifaðar. Þessi sægreifar byrjuðu í útgerð þó nokkru eftir að kvótakerfi og framsal var ákveðið á Alþingi á sínum tíma.
Ég var að hugsa um að hafa fyrirsögnina: ,,Ef þú ert ekki með þá ertu á móti.“ Eða: ,,Ef þú hefur aðra skoðun en ég þá er hún byggð á annarlegum forsendum.“ (Þetta skýrist hér í lok færslunnar). En færslan á að fjalla um sjávarútveg eða öllu heldur afstöðu til mála. Afstaða mín til sjávarútvegs […]
Ég hef að undanförnu skrifað aðeins um umræðuhefðina í stjórnmálum á Íslandi. Núna langar mig að skrifa aðeins um sjálfsmynd okkar og hvernig við ræðum um sjálf okkur. Við Íslendingar erum lítil þjóð sem hefur náð þeim árangri að vinna okkur úr mikilli fátækt í lífsskilyrði sem eru með því besta sem þekkist. Í mesta […]
Fólk keppist við að hrósa sjónvarpsþættinum Silfri Egils vegna þess sem þar kom fram frá erlendum viðmælendum Egils Helgasonar. Mér finnst ástæða til að taka undir að þátturinn var upplýsandi. Hins vegar eru viðbrögð þjóðarinnar í samræmi við umræðuhefðina hér á landi. Það sem kom fram í dag hefur komið fram áður og það margoft […]
Fyrirsögnin er úr nýlegum pistli mínum. Þar fjallaði ég um að við yrðum að komast upp úr skotgröfunum og hætta að meiða hvort annað. Umræðuhefðin á Íslandi er ekki nógu góð, það verður að segjast eins og er. Þetta er oft í Morfís stílnum. Láta andstæðinginn hafa það. Skipta um skoðun eftir því hvorum megin […]
Núverandi ríkisstjórn tók við á tímum þegar forgangsmál var að takast á við afleiðingar bankahrunsins hér á landi. Henni fylgdu góðar óskir landsmanna og vonir um að vel tækist til. Samstarf Sambands íslenskra sveitarfélaga f.h. sveitarfélaganna í landinu hefur verið ágætt við þessa ríkisstjórn eins og fyrri ríkisstjórnir. Samráðsfundir hafa verið tíðir og upplýsingagjöf þokkaleg […]
Ég skrifaði um viðbrögð nokkurra við ákvörðun forseta Íslands í gær. Þau eru ólík því sem var þegar hann synjaði því að staðfesta fjölmiðlalögin. Svona er nú pólitíkin á Íslandi og því miður víðar, það fer eftir því hvorum megin við borðið fólk situr, hver afstaða þess er. Þetta er sem betur fer ekki algilt […]