Þriðjudagur 07.12.2010 - 08:44 - 5 ummæli

Gæðastund í morgunsárið

Ég var frekar argur þegar borgarstjórn Reykjavíkur ákvað í sparnaðarskyni að hætta með aukakennslustundir í grunnskólum borgarinnar í fyrra og stjórnendur Breiðagerðisskóla brugðust við með því að seinka upphafi skólastarfsins á morgnanna. Í stað þess að hefja skólastarfið klukkan 8:10 þá hefst það nú kl. 8:35.

En nú er ég afar ánægður. Því þessi seinkunn hefur gefið mér kost á gæðastund í morgunsárið með yngstu börnunum mínum þremur sem öll eru í Breiðagerðisskóla í vetur.

Við höldum áfram að vakna á sama tíma og áður – en fáum rúman og góðan tíma til að borða morgunmat, lesa blöðin – sem reyndar eru bútuð niður svo allir geti lesið – líka Gréta 6 ára sem er að læra að lesa og vill stauta sig gegnum fyrirsagnirnar – spjalla saman og klæða okkur í rólegheitunum. Skutla þeim síðan í skólann. Sjaldnast stress því tíminn nægur.

Þessi gæðastund í morgunsárið er mikilvæg. Sérstaklega núna þegar æfingar strákanna eru tvist og bast í eftirmiðdaginn – stundum ekki búnar fyrr en í miðjum matartíma – og matartíminn því tætingslegri en áður.

Já, stundum breytist ergelsið í gleði. Og það er nú gott!

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

  • Vegir Bezta eru órannsakanlegir!

  • Hallur Magnússon

    Skarpur.

    Þetta var reyndar á meðan ábyrg stjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hélt um stjórnvölinn og hafði virka og góða samvinnu við minnihlutann í borgarstjórn um stjórn borgarinnar.

    Þau vinnubrögð eru því miður fyrir bí.

  • Kristinn M Jonsson

    Gleði og gæðastundir…

    Mig langar að deila með þér smá extra Hallur. Það er nefnilega svo að ég á akkurat líka umræddar gæðastundir í morgunsárið og gott betur, finnst mér.

    Extra: Þú segist skutla dætrum þínum en það geri ég ekki, heldur rölti ég með dætrum mínum 10 ára og 8 ára í skólann og það er skrafað á vel leiðinni um hitt og þetta. Síðan skokka ég einn til baka og pæli.

  • Hallur Magnússon

    Kristinn.
    Ef ekki væri vel rúmur kílómeter í skólann og yfir tvær umferðagötur að fara í myrki – þá gætum við tölt þetta 🙂

    Strákarnir tveir tölta heim eftir skólann – en við sækjum stelpuna. Tvisvar reyndar í fótbolta niðrí Vík – þar sem fótboltaæfing fellur inn í skóladagheimilið!

  • Hallur ég tek undir orð Kristins. Kílómeter er ekki löng ganga. Er ástæða til að láta sér vaxa það í augum að fylgja börnum yfir gangbrautirnar á Sogaveginum og Réttarholtsveginum? Það eru umferðarljós á þeim báðum. Ég held satt að segja að börnin sé í meiri hættu á leiðinni á milli bílsins og skólalóðarinnar. Fyrir utan hvað manni líður sjálfum miklu betur að hafa viðrað sig aðeins í morgunsárið. Gönguferðir í góðum félagsskap eru mikilll gleðigjafi.

    Síðan er holt að hugleiða aðeins hvers eðlis samskiptin eru á milli foreldra og barna á meðan maður er að skutla þeim. Börnin aftur í og foreldrarnir (ættu að vera) að einbeita sér að akstrinum. Það tók mig langan tíma að átta mig á því hversvegna strætóferðir með pabba voru svona miklu meira spennandi en bílferðir fyrir mín börn.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af þremur og þremur? Svar:

Höfundur

Hallur Magnússon
Fjögurra barna faðir "af vondu fólki" og áhugamaður um þjóðmál.

Heldur upp á eftirfarandi vísu:

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun."

Séra Baldur segir að Hallur sé: "...bæði sviphreinn og tillögugóður"!
RSS straumur: RSS straumur