Farsælar breytingar á stjórnarskrá Íslands er eitt af mikilvægustu verkefnum samtímans. Þjóðin virtist lengst af vera meðvituð um mikilvægi þess. En nú virðist sem lunginn úr þjóðinni hafi gefist upp á stjórnarskrármálinu og telji róttækar breytinga á stjórnarskrá mega bíða enn um sinn. Það er afar slæmt því þörfin á breytingum er svo sannarlega til staðar. […]
Á meðan við horfum á öfgafull viðbrögð viðsterkri stöðu Framsóknarflokksins í viðhorfskönnunum – þar sem stuðningsmenn Framsóknar sem um langt árabil hafa þurft að sæta nánast einelti fyrir stjórnmálaskoðanir sínar geta varla hamið sig af ánægðu og hatrammir andstæðingar Framsóknarflokksins gersamlega missa sig í venjubundnu lítt rökstuddu skítkasti sínu gagnvart Framsóknarflokkum – þá yfirsést flestum merkileg […]
Það voru margir sem hnýttu í mig fyrir nokkrum dögum þegar ég spurði hvort Framsókn væri „Venstre“. Þá var ég að vísa til þess þegar „Venstre“ í Danmörku tók yfir sem forystuafl borgaralegu aflanna af gamla danska íhaldsflokkunum sem hafði um áratugaskeið verið óumdeilt forystafl! Nú virðist sú staða sem ég spáði vera að rætast. Allavega […]
Ömurleiki DV tekur á sig margar myndir. Þekkt er hvernig DV beitir oft að hæpnum fyrirsögnum sínum í sambland við myndir til þess að telja fólki trú um að hlutirnir séu öðruvísi en þeir eru. Gjarnan til þess að koma höggi á fólk sem blaðamönnum á blaðsneplinum líkar illa við. Þessi illfýsi DV beinist í dag að […]
Í uppsiglingu er fullkomin kaos smáframboða. Sú kaos er að mörgu leiti eðlileg í kjölfar efnahags og kerfishruns. Þá hefur hefðbundið flokkakerfi 20. aldarinnar hefur verið að riðlast á undanförnum misserum og árum. En út úr kaos kemur oft regla. Ég vænti þess að regla verði komin á kaosina í lok næsta kjörtímabils og nýjar línur […]
Rafvirkinn Guðmundur Ingólfsson hefur að undanförnu farið mikinn í órökstuddum rógi um mann og annan. Í dag óskaði ég ítrekað eftir rökum þessa angans manns sem virðist bera hatur í hjarta ákveðins hóps fólks á Íslandi. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir mínar um rökstuðning fyrir meiðandi staðhæfingum Guðmundar Ingólfssonar – sem hann eðlilega gat ekki lagt fram […]
„Ég hefði aldrei trúað því, að óreyndu, að þetta ætti eftir að breytast, að Sjálfstæðisflokkurinn yrði ekki lengur málsvari frjálsrar hugsunar, að þar ættu eftir að komast til valda fulltrúar einangrunar og forræðishyggju, þar sem flokkurinn ætti að ráða því hvað menn hugsuðu og gerðu, að ekki yrðu leyfðar samræður forystunnar og grasrótarinnar, ef upp […]
Ég var að kaupa litla 180 gramma skyrdós á 460 íslenskar krónur. Reyndar bragðbættum með perum og smá múslí. Skyrið er Q skyr. Framleitt úr norskri mjólk með sérstöku leyfi frá MS á Íslandi held ég. Skyrdósin var 30% dýrari en svipaðar sýrðar mjólkurvörur í hillunum. En rennur þó út eins og rjómabland í íslenskri sveit! […]
Það fauk verulega í mig að sjá fyrrverandi barnaverndarráðherra til margra ára koma eins og af fjöllum af áhrifamiklum fundi með börnum sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi láta eins og þetta sé nánast í fyrsta skipti sem ráðherrann stendur frammi fyrir börnum sem á hetjulegan hátt lýsa hræðilegri lífsreynslu sinni. Fyrirgefið – ég ætla […]
Það hefur verið vinsælt að hjóla í Gísla Martein Baldursson borgarfulltrúa vegna baráttu hans fyrir bættum hag hjólreiðamanna í borginni. Fyrst voru það furðulostnir samflokksmenn hans sem áttu erfitt með að skilja að Sjálfstæðismaður og frjálshyggumaður skyldi tala fyrir því að Reykjavíkurborg Í þeirra huga voru fullorðnir hjólreiðamenn skrítnar skrúfur eða anarkistar eða rauðvínskommar. Alls ekki […]