Mikilvæg rannsóknarskýrsla Alþingis vegna efnahagshrunsins hefur í hugum sumra verið nánast heilög. „Hin heilaga rannsóknarskýrsla“. Á sama hátt hefur rannsóknarnefndin í hugum sumra verið jafn heilög og „Hinn heilagi rannsóknarréttur“. Ég veit að það sómafólk sem skipaði nefndina er ekki á þessari skoðun. Það veit vel að það er breiskt eins og annað fólk og […]
Við eigum að afskrifa núverandi skuldir stjórnmálaflokkanna. Í kjölfarið innleiða algerlega gagnsætt kerfi þar sem hver króna í starfi stjórnmálaflokka verði uppi á borðinu – hvaðan hún kom og hvert hún fer. Þannig snarminnkum við núverandi tangarhald ýmissa hagsmunaaðilja sem nú hafa tök á stjórnmálaflokkunum gegnum skuldir þeirra. Það er nefnilega tangarhald í núverandi skuldum […]
Það er eðlilegt að Geir Haarde sé fúll út í þá sem greiddu atkvæði með því að draga hann fyrir Landsdóm. En þrátt fyrir það verður maðurinn að skilja að það voru rök fyrir því að svo yrði gert. Hins vegar voru engin rök fyrir því að draga Geir Haarde einan og sér fyrir dóminn. […]
Borgin vill að starfsfólk og þá væntanlega gestir Hörpu taki strætó. Á sama tíma dregur borgin úr tíðni strætisvagna úr 15 mínútum í 30 mínútur. Er eitthvað hérna sem passar ekki?
Við eigum að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um veru Íslands í NATO samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu. Þá afgreiðum við í einu lagi ágreining um framtíðarstöðu Íslands á alþjóðavettvangi.
Það var vel við hæfi að Jón Gnarr borgarstjóri tæki virkan þátt í tískusýningu Hjálpræðishersins á Austurvelli til að vekja athygli á fatasölu – og nytjahlutasölu Hjálpræðishersins. Ágóði af sölunni rennur til dagseturs Hjálpræðishersins fyrir útigangsfólk, en eins og ég hef margoft vakið athygli á þá vinnur Hjálpræðisherinn afar gott og mikilvægt starf fyrir útigangsfólk í […]
Það að hinn gallharði vinstri maður Ásmundur Einar Daðason fyrrum alþingismaður VG skuli ganga til liðs við Framsóknarflokkinn staðfestir að Framsóknarflokkurinn er að fjarlægjast hefðina sem frjálslyndur umbótaflokkur á miðju stjórnmálanna. Ég er ósáttur við þá vegferð sem Framsóknarflokkurinn hefur verið á að undanförnu – þrátt fyrir einstaka gott stefnumál flokksins – enda sagði ég mig […]
Jón Gnarr* brást snarlega við og mun loka slysagildru strax í dag! Fyrirmyndarvinnubrögð og borginni til sóma. Eftirfarandi kom fram áðan í athugasemdakerfi við pistil minn Barnaslys í boði borgarinnar? : „Komdu sæll Hallur, Nú í morgun var athygli mín vakin á bloggi þínu. Við erum búin að fara á staðin og skoða aðstæður. Þakka þér fyrir réttmæta ábendingu […]
Þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir þá hefur Jón Gnarr* borgarstjóri ekki gert einfaldar ráðstafanir til að koma í veg fyrir mögulegt barnaslys á aðreininni af Miklubraut inn á Reykjanesbraut þar sem gangstígur frá Tunguvegi við Ásenda liggur að gangstíg meðfram Miklubraut/Reykjanesbraut. Slysagildran er augljós eins og sjá má á eftirfarandi mynd – þar sem vanta bút af öryggisriði […]
Það mætti halda að náttúruperlan „Eyjabakkar“ væru nú staðsett í Laugardalnum norðan gatnamóta Suðurlandsbrautar og Grensásvegar. Allavega ef marka má heilaga vandlætingu tuga fólks sem hefur ómakað sig við að hrauna yfir mig fyrir þá ábendingu að rétt væri að skipuleggja tímabundin bílastæði í Laugardalnum þegar fyrirsjáanlegt er að dalurinn fyllist af barnafjölskyldum vegna íþróttamóta á […]